Sóltún 30

105 Reykjavík

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Sóltún 30
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
84,9 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1998
Fermetraverð
823.322 kr.

Lýsing

Fasteignasalan BÆR , Auður & Ólafur kynna: rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 5. hæð að Sóltúni 30 , 104 Reykjavík í lyftuhúsi. Íbúðin getur verið laus við kaupsamning.

Nánari lýsing:

Íbúð 504.

Anddyri með fatahengi.

Komið inn í hol , sem tengir saman öll rými íbúðarinnar.

Eldhús : með L-laga innréttingu og nettum borðkrók. Í innréttingu er bakarofn, helluborð, vifta og tvöfaldur stálvaskur. Tengt er fyrir uppþvottavél og innbyggð uppþvottavél fylgir.

Stofa : snýr að bakgarði. Svalir snúa í suður.

Baðherbergi : klósett, handlaug & baðkar m/sturtu. Flísar á veggjum að hluta.

Herbergin eru 2 og eru bæði með fataskáp.

Gólfdúkur er á allri íbúðinni.

Sameiginlegt þvottahús fyrir íbúðir hæðarinnar eru á hæðinni. Tvö sett af þvottavél og þurrkara eru þar.

Hjólageymsla á jarðhæð.

Lóðin er leigulóð. Lóðarleigusamningur er frá 1996 til 75 ára.

Eignin er skráð þannig hjá HMS: íbúð á hæð merkt 01-05-04, birt stærð er 84,9 fm byggt 1998. Íbúðin sjálf er 3ja herbergja skráð 77,4 fm. Sér geymsla í kjallara er skráð 7,5 fm. Geymslan er merkt 01.00.42 í skráningu.

Stutt í þjónustu og skóla.

Sér merkt bílastæði fyrir íbúðina ásamt gestastæðum.

Allar nánari upplýsingar veita:

Auður Sigr Kristinsdóttir s 824-7772 & tölvupóstur audur@fasteignasalan.is

Ólafur Tr Thors s 666-8-777 & tölvupóstur olafur@fasteignasalan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og til húsfélags, þegar um það er að ræða. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.