Unufell 50

111 Reykjavík

Ásett verð: 59.900.000 kr.

Unufell 50
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
97 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1972
Fermetraverð
617.526 kr.

Lýsing

Domusnova og Hallgrímur Tómasson löggiltur fasteignasali og lögfr. kynna:

Unufell 50 með fastanr. 2052885, björt 4 - 5 herbergja íbúð á 4. og efstu hæð í rólegu fjölbýli. Eignin er skráð 97 fm og þar af er geymsla í sameign 4,8 fm.

Laus strax við kaupsamning.

Lýsing eignar:

Komið er inn forstofu/gang sem tengir önnur rými íbúðarinnar saman.

Forstofa: Rúmgóð með frístandandi fataskáp sem getur fylgt með kaupum.

Eldhús: mjög rúmgott og bjart. Snyrtileg innrétting með góðu skápaplássi. Eldhúseyjan er frístandandi. Pláss fyrir uppþvottavél eða þvottavél í innréttingu.

Stofa: er opin og rúmgóð með góðum gluggum og rúmar vel borðstofu. Frá stofu er gengið út á góðar austur svalir.

Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf með eldri innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu.

Svefnherbergin: eru 3 öll rúmgóð og tvö þeirra með frístandandi fataskáp sem geta fylgt með kaupum.

Skipulagi eignarinnar hefur verið breytt á þann veg að lokað hefur verið frá gangi inn í eldhús og frá eldhúsi í þvottahús og þannig búið til auka herbergi eða hreinlega stærra þvottahús.

Sérgeymsla í sameign.

Sér bílastæði fylgir eigninni og hafa verið settar hleðslustöðvar í öll bílastæðin og tendar við rafmagn hverrar íbúðar.

Framkvæmdir sem hafa verið gerðar á seinustu árum:

2019 - Skipt um þak og þakglugga

2023 - Svalalokun á endum á svölum og máluð afturhlis hússins. Settar upp nýjar rennur frá svölum.

2024 - Þak málað

2024 - Svalir flotaðar

2026 - Rafmagnshleðsla fyrir rafbíla sér tengd á hverja íbúð frá einkastæðum.

Eldri frammkvæmdir :

Skipt var um um glugga á eldhúsi og stofu ásamt svalahurð. Um er ar ræða álgluggaumgjörð.

Útveggir í stofu og eldhúsi voru hækkaðir upp frá gólfi og nýjir ofnar settir á þá undir gluggunum sem fríar upp töluvert gólfrými í stofu og eldhúsi.

Þvottarhúsi og forstofu var breytt í eitt gluggalaust herbergi.

Sameignin skipti um glugga á framhlið húsins- plastumgjörðir

Stutt er í alla almenna þjónustu ss. skóla, leikskóla, sundlaug, Íþróttahúsog fallegar gönguleiðir í Elliðaárdal.

Stutt út á stofnbrautir og á næstu Strætóstoppustöð.

Nánari upplýsingar veita:

Hallgrímur Tómasson löggiltur fasteignasali / s.659 1896 / hallgrimur@domusnova.is

Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.