Skipholt 62

105 Reykjavík

Ásett verð: 159.900.000 kr.

Skipholt 62
Tegund
Hæð
Stærð
211,19999961853 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2002
Fermetraverð
757.102 kr.

Lýsing

Betri Stofan kynnir til sölu: Mjög rúmgóða og vel skipulagða 185,3m² sérhæð auk 25,9m² bílskúr, samtals 211,2m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar: forstofa, stigapallur, sjónvarpskrókur, hol, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, þrjú herbergi, tvennar svalir, gangur, þvottahús, geymsla, gestasalerni og baðherbergi.

Nánari lýsing:

Forstofa: flísar tvöfaldur fataskápur.

Stofa/borðstofa: í alrými með eldhúsi, arinn (virkur), útgengt út á svalir til austurs.

Eldhús: eldhúsbekkur með steyptri borðplötu, vaskur, útdraganlegur krani, innbyggð uppþvottavél. Eyja, borðplata stál, gaseldavél og bakaraofn 90cm. Gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu.

Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, vaskinnrétting með steyptri plötu, speglaskápur, baðkar og sturta með innfelldum tækjum, gluggi, útgengt út á svalir til austurs.

Herbergi I: hjónaherbergi, fatarými með fjórföldum fataskáp og hillum.

Herbergi II: fataskápur og hillur.

Herbergi III: tvöfaldur fataskápur og hillur.

Möguleiki að sameina herbergi II og III, léttur veggur milli rýma.

Þvottahús: innrétting, pláss fyrir þvottavél og þurrkara, snúrur, vaskur.

Geymsla: er inn af þvottahúsi.

Salerni: flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, vaskur og sturta með innfelldum tækjum.

Gólfefni, flísar á forstofu, stigaskör, sjónvarpsrými, salerni, baðherbergi og meðfram eldhúsinnréttingu. Gegnheilt bambus parket á alrými, holi, gangi og herbergjum.

Bílskúr, steypt gólf, niðurfall.

Sameign, hjóla- og vagnageymsla, lagnakompa og sorpgeymsla.

Skipholt 62 er steinsteypt íbúðarhús á þremur hæðum, ein íbúð á hverri hæð. Þak er einhalla. Guðbjörg Magnúsdóttir, innanhússarkitekt, hannaði allar innréttingar í húsið sem voru sérsmíðaðar af Hegg innréttingum, samkvæmt seljanda. Innfelld ljós frá LUMEX í öllum rýmum. Vola tæki á baðherbergi og salerni. Hiti er í plani. Húsið málað að utan, 2017. Parket pússað og lakkað, 2022.

Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu íbúð 0301:

Eignin er sex herbergja íbúð á þriðju hæð hússins 179,7 m², ásamt anddyri 0202, 5,6 m². Geymsla er í íbúðinni. Eigninni fylgir sérafnotaflötur sem er innkeyrsla að bílskúr. Einnig fylgir sér bílastæði við norðvestanvert húsið merkt stæði 03 á fylgiblaði sérafnotafletir og bílastæði. Eigninni fylgir hlutdeild í sameign allra í húsi ásamt sameign allra í lóð.