Langholtsvegur 54
104 Reykjavík
Ásett verð: 64.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 92,5999998092651 m²
- Herbergi
- 2
- Svefnherbergi
- 1
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1946
- Fermetraverð
- 700.864 kr.
Lýsing
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja neðri sérhæð í tvíbýlishúsi við Langholtsveg 54, 104 Reykjavík. Eignin er skráð 92,6 m2, en þarf af íbúð 78,4 og geymsla 14,2 m2. Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, hol, eldhús, stofu, baðherbergi, tveimur geymslum innan íbúðar og útigeymslu. Sameiginlegt þvottahús sem er aðgengilegt innan íbúðar. Sameiginleg lóð með steyptri verönd og heitum potti. Steypt bílaplan með snjóbræðslu er fyrir framan íbúðina. Íbúðin er staðsett á eftirsóttum stað í rólegu og grónu hverfi þar sem stutt er í helstu þjónustu.
Skv. upplýsinum frá selajnda hefur húsið fengið talsvert viðhald. Á árunum 2012-2013 var sett dren og skolplagnir endurnýjaðar, steypt plan með hitalögn og ný rafmagnstafla. Útidyrahurð endurnýjaðar, skipt um alla glugga, múrviðgerðir á öllum útitröppum og steyptu handriði. Baðherbergi tekið í gegn.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með parketi á gólfi og innréttingu. Í innréttingu er eldavél og vaskur. Inn af eldhúsi er geymsla nr. 1
Hol er með parketi á gólfi og geymsluskáp. Holið tengir saman öll rými hússins. Þar á meðal sameiginlega þvottahúsið og geymslu nr. 2 sem er góð geymsla með opnarlegum glugga.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni, sturta, handklæðaofn, lítil innrétting með handlaug og gólfhiti.
Stofa er með parketi á gólfi.
Sameiginlegt þvottahús er aðgengilegt innan íbúðar.
Útigeymsla er með glugga, við bílskúr. Er skráð 14,2 m2. Geymslan er óeinangruð.
Verð kr. 64.900.000,-