Hnjúkamói 16 ÞAKÍBÚÐ 502 m bílskúr

815 Þorlákshöfn

Ásett verð: 109.900.000 kr.

Hnjúkamói 16 ÞAKÍBÚÐ 502 m bílskúr
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
157,00000038147 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
700.000 kr.

Lýsing

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424 ) kynnir: Stórglæsilega 126,4m2 þakíbúð ásamt 30,6m2 bílskúr að Hnjúkamóa 14, íbúð 0502, með fallegu útsýni!

Íbúðin er með tvennum svölum til há-suðurs og vesturs, með tengingu fyrir heitan pott og saunaklefa. Aukin lofthæð er í íbúðinni og gólfsíðir gluggar.

ÍBÚÐIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR !

** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

Kynning á þakíbúðinni: [link]

Húsinu fylgir stór, lokuð hjóla- og vagnageymsla. Rafhleðsla fyrir rafmagnsbíla. Háhraða ljósleiðaratenging er í húsinu.

Eignin telur:

* Rúmgóða forstofu með stórum skápum.

* Stórglæsilega stofu og eldhús í opnu rými, með stórum, gólfsíðum gluggum sem snúa í suður og vestur.

* Í eldhúsi er falleg, sérsmíðuð Voke III innrétting, ljós í bland við dökka viðaráferð, vönduð AEG heimilistæki; sjálfhreinsandi ofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og kæli-/frystiskápur. Borðplöturnar eru slitsterkar kvartseinsplötur frá Technistone.

* Utangengt er úr stofunni á 81,3m2 timburklæddar svalir með glæsilegu útsýni sem snýr í norður. Tengi er fyrir heitan pott og saunaklefa er á svölum.

* Stórt sjónvarpsherbergi sem á einfaldan hátt er hægt að loka og breyta í svefnherbergi / vinnuherbergi.

* 2-3 stór svefnherbergi.

* Utangengt er á 8,6m2 vestur-svalir úr hjónaherbergi.

* Stórt fataherbergi inn af hjónaherbergi.

* Glæsilegt baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu, sturtu úr glerþili með innbyggðum sturtutækjum og fallegum og endingargóðum Grohe hreinlætisækjum, upphengdu wc og innréttingu með speglaskáp. Á gólfi og 2 veggjum á baðherberginu eru ítalskar 60x120cm ljósar flísar.

* Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á innaf baðherberginu á snyrtilegan hátt.

* Á öllum gólfum, nema baðherbergi, er vandað BerryAlloc Connect XL8 Bloom harðparket með stórum plönkum frá Álfaborg

* Innihurðir: Stílhreinar hvítlakkaðar yfirfelldar hurðir Dana SAX frá Parka.

* LED-ljós frá Ískraft fylgir.

* Lyfta er í húsinu.

* Bílskúr er fullfrágenginn með epoxi á gólfi. Á einfaldan hátt er hægt að útbúa geymslu í enda bílskúrsins.

* Við húsið er stór, sameiginleg, lokuð hjóla- og vagnageymsla með epoxi á gólfi. Sorpgerði er á lóð.

* Á lóðinni eru 25 bílastæði í óskiptri sameign, þar af 2 fyrir hreyfihamlaða.

* Stéttar næst húsi og gangstígar á lóð verða steypt eða hellulagt, snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið og að sorpgerði. að öðru leyti verður lóð frágengin með þökum.

Efnisval:

Innréttingar: Ljósar innréttingar í bland við dökka viðaráferð, sérsmíðaðar af Voké-III. Borðplötur í eldhúsi eru vandaðar og slitsterkar kvartsteinsplötur frá Technistone

Heimilistæki: Vönduð AEG tæki frá Rafha.

Flísar á baðherbergi: Ljósar ítalskar 60x120 Ceramiche Piemme flísar frá Álfaborg

Gólfefni: Vandað BerryAlloc Connect XL8 Bloom harðparket með stórum plönkum frá Álfaborg

Innihurðir: Stílhreinar hvítlakkaðar yfirfeldar hurðir Dana SAX frá Parki

Hreinlætistæki: Vönduð hreinlætistæki frá Grohe, innbyggð sturtutæki og flöt salerniskál.

Lýsing: LED-ljós frá Ískraft fylgja öllum rýmum íbúða

Rofar og tenglar: Hvítur rofabúnaður af gerðinni Jung, frá Reykjafell

Lagnaefni: Vandað pípulagnu- og raflagnaefni frá traustum framleiðendum

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.

Heimasíða fasteignasölunnar: [link]

S 483 3424

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:

KRÓNU VERSLUN

Apótekarann.

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)

Super1 pizza (facebook: super 1 pizza)

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.

Caffe Bristól.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er góður tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:

Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) og Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:

Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.

Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.

Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.

Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring

Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours ([link] er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.

Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.

** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á [link]