Farbraut 14

805 Selfoss

Ásett verð: 33.900.000 kr.

Farbraut 14
Tegund
Sumarhús
Stærð
56,9 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1989
Fermetraverð
595.782 kr.

Lýsing

Jón Smári Einarsson lgf. og Fasteignaland kynna eignina Farbraut, 801 Selfoss. Sumarhús á 7.000 fm skógi vaxinni eignarlóð. Hitaveita og lokað svæði (rafmagnshlið).

Lýsing:

Forstofa með með furuplönkum á gólfi. Eitt stórt herbergi (sameinað úr tveimur) með furuplönkum á gólfi. Stofan er rúmgóð með furuplönkum á gólfi og útgengi út á sólpall. Eldhús með furuplönkum á gólfi, nýlegri innréttingu. Baðherbergið er snyrtilegt, með furuplönkum á gólfi, salerni og handlaug.

Stór sólpallur er við húsið með girðingu og skjólgirðingu. Útisturta og heitur pottur . Af sólpalli er gengið inn í rúmgóða geymslu .

Sumarhúsið er skráð 46,9 fm. Sjálfstæð sólstofa er skráð 10 fm og er hún ónýt.

Vel hefur verið hugsað um sumarhúsið og skv. seljandi eftirfarandi m.a. verið gert síðastliðin ár:

* 2025 - Baðherbergi endurnýjað að miklu leyti.

* 2025 - Ný útisturta og lagnir að heitum potti.

* 2025 - Tenglar og rafmagn að endurnýjaðir að hluta.

* 2025 - Útiklæðning endurnýjuð á hluta útveggja.

* 2024 - Innri klæðning endurnýjuð á hluta veggja og lofts.

* 2024 - Eldhús endurnýjað.

* 2024 - Nýtt þakjárn, þak og þakkantur yfirfarinn.

* 2022 - Gólf slípað, lakkað og kíttað.

Góð aðkoma og næg bílastæði.

Sjá 3D mynd af svæðinu hér (sjá leiðbeingar um notkun í (i) hnappi).

Eignin Farbraut 14 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 220-8004, merkt 01-01, birt stærð 56.9 fm.

Búslóð fylgir ekki nema sérstaklega umsamið.

Árgjald í félag sumarhúsaeigenda á svæðinu er um kr. 30.000 á ári.

Svæðið er lokað af með ramagnshliði (símahlið) á tveimur stöðum, frá Þingvallavegi og Biskupstungnabraut.

Staðsetning og nærumhverfi:

Stutt er í golfvelli, veiði, sundlaug og fallegar gönguleiðir. Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Selfoss er aðeins í ca. 16 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu.

Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.

Nánari upplýsingar veitir:

Jón Smári Einarsson

Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.

jonsmari@fasteignaland.is

s. 860-6400

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:

Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.