Reykjabyggð 47

270 Mosfellsbær

Ásett verð: 159.500.000 kr.

Reykjabyggð 47
Tegund
Einbýlishús
Stærð
205,2 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1987
Fermetraverð
777.290 kr.

Lýsing

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s: 662-6163 ) kynnir vel skipulagt 205,2fm einbýlishús á einni hæð við Reykjabyggð í Mosfellsbæ. Húsið sjálft er 169,2fm auk 36 fm bílskúrs. Aukin lofthæð. Arinn í stofu. Fjögur svefnherbergi og möguleiki á því fimmta. Bílskúr Eignin samanstendur af alrými (stofa/borðstofa), eldhúsi, fjórum ágætum svefnherbergjum, sjónvarps herbergi, baðherbergi, gesta salerni, geymslu, þvottahúsi og rúmgóðum bílskúr. Fasteignamat 2027 samkv HMS 144.450.000kr.

- EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ

- FJÖGUR SVEFNHERBERGI

- TVÖ BAÐHERBERGI

- AUKIN LOFTHÆÐ

- ARINN

- BÍLSKÚR

Nánari lýsing:

Komið er inn í anddyri með svörtum náttúru flísum, fatahengi, hiti í gólfi.

Gestasalerni flísalagt í hólf og gólf, innrétting, upphengt wc, sturtuklefi.

Björt og falleg stofa/borðstofa með uppteknum loftum, burðar bitar fá að njóta sín, fallegur arin, útgengt úr borðstofu á góðan sólpall.

Eldhúsið er opið við stofu með u laga ljósri innréttingu með góðu vinnuplássi, háfur, tvöfaldur ísskápur, niðurtekinn ljósastokkur, flísar á gólfi.

Svefnherbergin eru fjögur, öll þeirra með stórum og góðum fataskápum. Möguleiki er að bæta fimmta herberginu við við enda gangs þar sem í dag er sjónvarpsrými.

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, viðarlituð innrétting, handklæðaskápur, stór innbyggður sturtuklefi, gluggi.

Rúmgott þvottahús flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting, útgengt að framanverðu.

Bílskúrinn er 36fm með góðri lofthæð, geymsluloft, margir gluggar. Mjög rúmgott hellulagt bílaplan með hitalögn undir.

Geymsla/búr með hillum. Geymsluloft yfir herbergjagangi, útgengt á tvo vegu frá herbergisgangi.

Sólpallur sem er að mestu aflokaður snýr mót suð-vestri, útgengt á hann úr þremur mismunandi rýmum hússins.

Endurbætur samkvæmt seljendum:

2016 Fataskápar i barnaherbergi. Þriggja fasa rafmgn, hleðslustöðvar inn í bílskúr

2017 Spanhella og nýr ofn í eldhúsi

2018 Sérsniðnar gardínur í alla glugga, myrkvunargardínur í mörgum gluggum

2020 Stétt og ruslatunnuskýli klárað, settir upp ál matjurtagarðar

2021 Gólf á háalofti klætt alveg út í enda og stigi settur upp, milliloft i bílskúr stækkað.

2022 & 2024 Gluggar, skipt um gler og gluggar lagaðir og málaðir.

2023 Arinn gerður nothæfur, vifta á strompi og gler í arinn

2024 Þakkkantur málaður

Húsið er vel staðsett í botnlanga við lokaða götu í rólegu og barnvænu hverfi. Stutt er í fallegar og friðsælar gönguleiðir, í Álafosskvos og við Reykjalund. Leikskóli og grunnskóli eru innan hverfisins, stutt er í framhaldsskóla og ekki langt í íþróttasvæðið við Varmá. Stutt í alla verslun og þjónustu, þmt Reykjabúið sem selur egg og alifugla afurðir.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.