Staðarbakki 4

109 Reykjavík

Ásett verð: 107.900.000 kr.

Staðarbakki 4
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
162,5 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1973
Fermetraverð
664.000 kr.

Lýsing

Staðarbakki 4, Reykjavík - bjart og vel skipulagt fjölskylduhús með innbyggðum bílskúr á vinsælum stað í Bökkunum.

Hér færðu heimili sem hentar fjölskyldunni vel – gott skipulag á þremur pöllum, stofa og borðstofa í opnu rými með útgengi á vestursvalir.

Frá sjónvarpsrými er gengið beint út á stóran pall og fallegan, gróinn garð.

Þrjú stór herbergi og eitt minna sem hægt væri að nota sem skrifstofu.

Eftirsótt staðsetning, stutt í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu og þá er Elliðaárdalurinn í næsta nágrenni með fjölbreyttum göngu- og hjólastígum.

Helstu kostir: 162,5 fm pallaraðhús með innbyggðum bílskúr

Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi

Stór pallur og gróinn garður

Vestursvalir út frá stofu

Tvö bílastæði með hitalögnum

Fjölskylduvæn og vinsæl staðsetning

Nánari lýsing

Miðpallur:

Forstofa með fataskáp. Hol með aðgengi að eldhúsi og gestasnyrtingu. Eldhús með ljósri innréttingu, flísum á milli skápa og borðkrók. Flísar á gólfi.

Efri pallur:

Stofa og borðstofa í opnu rými með útgengi á svalir. Eitt stórt herbergi og annað minna. Parket á gólfum.

Neðri pallur:

Tvö herbergi með parketi og skápum. Sjónvarpshol með útgengi á pall og garð. Flísar með gólfhita.

Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með „walk-in" sturtu og góðum skápum. Þvottahús með hillum.

Tvö hellulögð bílastæði með hitalögnum fyrir framan bílskúr. Heitt og kalt vatn í bílskúr.

Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, m.a. klæðning á göflum og milligöflum.

Eign sem vert er að skoða.

Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Jónasdóttir löggiltur fasteignasali í síma 661-4141, eða gegnum tölvupóstfangið sigridur@bjarturfasteign.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0,8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: Af kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv., kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.