Neðstaleiti 2

103 Reykjavík

Ásett verð: 89.900.000 kr.

Neðstaleiti 2
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
133,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1985
Fermetraverð
675.432 kr.

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515, jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna: Bjarta og fallega jarðhæð með sérafnotareit og stæði í lokuðum bílakjallara við Neðstaleiti 2 í 103 Reykjavík. Eignin er skráð 133,1 fm hjá Þjóðskrá Íslands, þar af er stæði í bílakjallara skráð 27 fm. Stutt í skóla, verslanir, þjónustu og samgöngur.

Eignin skiptist í 3 svefnherbergi, rúmgóða stofa með útgengi útá sérafnotareit með hellulagðri stétt. Íbúðin er endaíbúð með gluggum í þrjár áttir sem gerir hana mjög bjarta. Opið úr eldhúsi inní borðstofu og stofu. Þvottahús er innan íbúðar. Endurnýjað baðherbergi. Sérgeymsla í sameign, er ekki inní skráðum fermetrum eignar en er 5,22 fm að innramáli skv. teikningu. ATH: Birtir fermetrar eru fleiri.

Nánari lýsing:

Forstofa : Flísar á gólfi, fataskápur.

Eldhús : Parket á gólfi, nýleg innrétting með góðu skápaplássi og viðarborðplötu. Opnanlegur gluggi. Búið að opna inní stofu.

Stofa og borðstofa : Parket á gólfi, stórir gluggar í suður. Útgengi á stóran, gróinn sérafnotareit með hellulagðri stétt.

Hjónaherbergi : Parket á gólfi, stór fataskápur.

Svefnherbergi II: Parket á gólfi, fataskápur.

Svefnherbergi III: Parket á gólfi, fataskápur.

Baðherbergi : Flísar á gólfi, nýleg innrétting með handlaug, línskápur, sturta.

Þvottahús : Inn af forstofu, flísar á gólfi, skolvaskur, innrétting.

Sérgeymsla birtir fermetrar ca. 6-7, í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. (ekki skráð)

Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. (skráð í birtum fermetrum, 27 fm). - Rafhleðsla er við stæðið, einnig eru stöðvar fyrir utan húsið

Þvottaðastaða fyrir bíla er í bílakjallara.

Rafhleðslustöðvar eru við húsið.

Framkvæmdir undanfarið og væntanlegar skv. yfirlýsingu frá húsfélagi:

2027 Endurnýjun innkeyrsluhurðar í bílakjallara seinni hluta árs 2027, Lagfæra lóð og leiksvæði.

2025 Þakkantur lagaður, þakrennum skipt út eftir þörfum.

2023 Lagt fyrir rafhleðslustöðvum í bílakjallara. Fjórar hleðslustöðvar settar upp við bílastæði fyrir utan húsið.

2022 Lýsing/ljós endurnýjuð í bílakjallara. 2021 Skipt var um alla ofnaloka/hitastýringu í sameign. 2018 Nýjar lyftur voru settar í báða stigaganga.

Ákveðið síðar: Undirbúa endurbætur og málun á þaki. Nánari ákvörðun verður tekin á aðalfundi 2027.

Undirbúa endurbætur og viðgerð á þaki bílakjallara. Nánari ákvörðun verður tekin á aðalfundi 2027.

Samantekt: Falleg 4fa herbergja 106,1 fm íbúð með sér garði, eign á frábærum stað þar sem Kringlan og Borgarleikhúsið eru í göngufæri. Skólar, leikskólar og öll helsta þjónusta í nágrenni.

Nánari upplýsingar gefur Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.