Apavatn 2

806 Selfoss

Ásett verð: 28.900.000 kr.

Apavatn 2
Tegund
Sumarhús
Stærð
52,6000003814697 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1981
Fermetraverð
549.430 kr.

Lýsing

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Skemmtilegt sumarhús á flottum stað við þjóðveginn, í nánd við Laugarvatn og Apavatn. Bústaðurinn liggur við fallega aðgengilega á.

Sumarhúsið er byggt árið 1981 og stendur á 5000 fm eignarlóð sem er vel gróin.

Eignin er skráð 52,6 fm og skiptist þannig: Hús 43 fm auka tveggja geymslna sem eru 4,8 fm hvor.

Húsið er klætt með timbri og járn er á þaki. Við bústaðinn er stór viðarpallur á suður- og vesturhlið.

Eignin telur forstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, stofu, eldhús, svefnloft og geymslu.

Nánari lýsing:

Að innan er bústaðurinn panelklæddur og gólfefni er parket.

Í eldhúsi er falleg sérsmíðuð innrétting með örbylgjuofni og lítilli uppþvottavél.

Baðherbergi er með handlaug og salerni.

Svefnherbergin eru 2, einnig er svefnloft yfir hluta bústaðarins.

Lítil viðbygging er við hliðina á forstofunni og þar er geymsla/búr.

Lóðin er mjög þétt og gróin. Geymsluskúrarnir eru 2 og á milli þeirra er viðarpallur, við hann er plast gróðurhús.

Skemmtilegur hellulagður lundur er á lóðinni umkringdur trjám.

Kalt vatn kemur úr borholu á lóðinnni. Rafmagns-vatnshitari og rafmagns kynding eru í bústaðnum.

Góð aðkoma er að húsinu og góð bílastæði.

Innbú getur fylgt með í kaupunum.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.

arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum.