Laufengi 15

112 Reykjavík

Ásett verð: 72.900.000 kr.

Laufengi 15
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
97,7 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1994
Fermetraverð
746.162 kr.

Lýsing

Hannes Steindórsson kynnir með stolti:

Bjarta og vel skipulagða, fjögurra herbergja endaíbúð með sérinngangi af svölum á þriðju og efstu hæð við Laufengi 15.

Öll rými rúmgóð, suðursvalir með fallegu útsýni. Sérmerkt yfirbyggt stæði. HLeðslustöðar fyrir íbúa.

Stutt er í alla helstu þjónustu, Spöngina, Egilshöll, leik- grunn- og framhaldsskóla og einnig er golfvöllur stutt frá .

Forstofa: Flísalögð forstofa með skápum.

Hol: Parketlagt hol.

Eldhús: Eldhús er með fallegri innréttingu með góðu skápaplássi. Helluborð, vaskur, blástursofn, örbylgjuofn og innbyggð uppþvottavél. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.

Stofa/Borðstofa: Bjartar samliggjandi parketlagðar stofur, útgengt á svalir með fallegu útsýni í suðausturátt.

Svefnherbergi 1: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með skápum.

Svefnherbergi 2: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með skápum.

Svefnherbergi 3: Parketlagt svefnherbergi án skápa.

Baðherbergi: Rúmgott flísalagt baðherbergi með innréttingu, handklæðaofni, baðkari með sturtuaðstöðu, tengi er fyrir þvottavél ásamt glugga.

Geymsla: Sérgeymsla í sameign (5,4 fm). Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð.

Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson s.699-5008

Samkvæmt upplýsingum frá seljanda ver var húsið murviðgert og malað að utan árið 2021. Árið 2024 var skipt um eldhúsinnréttingu, innihurðir, parket og fataskápa í herbergjum.