Grandavegur 42

107 Reykjavík

Ásett verð: 102.900.000 kr.

Grandavegur 42
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
110,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2016
Fermetraverð
934.605 kr.

Lýsing

Skeifan fasteignamiðlun kynnir: Mjög falleg og björt 3ja herbergja íbúð á 2. hæð merkt 02-02 í lyftuhúsi með stæði í bílageymslu og stórum svölum með svalalokun. Íbúðin skiptist í; anddyri, hol, eldhúss, borðstofu og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og gestasnyrtingu. Sérinngangur af svölum. Mikil lofthæð. Birt stærð íbúðar er 110.1 fm., þ.e.a.s. íbúð 102.2 fm. og geymsla 7.9 fm.

NÁNARI LÝSING:

Anddyri: Flísar á gólfi, og fataskápur.

Eldhús með dökkri innréttingu, hvítir efri skápar, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, spanhelluborð, gluggi.

Opið er á milli borðstofu og eldhúss.

Stofa er með útgengi út á svalir til suð-austurs.

Hjónaherbergi er rúmgott og er með góðu skápaplássi.

Barnaherbergi er með góðum skápum.

Baðherberg er rúmgott, flísar á gólfi og hluta veggja. Walk-In sturta, upphengt salerni og vaskur í innréttingu. Speglar ofan við vask, handklæðaofn. Í þvottaskáp með rennihurðum er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara, þar er skolvaskur í borði.

Gestasnyrting: flísar á gólfi og hluta veggja, vaskur á innréttingu og spegill fyrir ofan.

Svalir eru til suðurs, með svalalokun og flísalagt gólf, rúmlega 20 fm.

Í nánast allri íbúðinni er aukin lofthæð 2,8-2,9 metrar. Á öllum gólfum öðrum en að framan greinir er hydrocork gólfefni frá Þ.Þorgrímsson. Allar innréttingar eru með dökkri viðaráferð. Innihurðir eru hvítar, yfirfelldar.

Geymsla: Sérgeymsla íbúðarinnar er í kjallara.

Bílastæði: sérmerkt bílastæði í bílakjallara, vel staðsett, hleðslusstöð fyrir rafbíla.

Sameiginlegur snyrtilegur garður. Í bílakjallara eru 19 gestastæði og þvottastæði. Mjög snyrtileg sameign.Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og íþróttahús.