Laugarnesvegur 62

105 Reykjavík

Ásett verð: 74.500.000 kr.

Laugarnesvegur 62
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
87,3 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1985
Fermetraverð
853.379 kr.

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir bjarta og fallega 87,3 fm. 3ja herbergja íbúð á 3. hæð að Laugarnesvegi 62, 105 Reykjavík. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, forstofu/hol og geymslu þar sem tengi er fyrir þvottavél. Eldhús og baðherbergi var endurnýjað árið 2021. Parket á holi og stofu var endurnýjað árið 2025.

Nánari lýsing:

Forstofa/hol er með rúmgóðum fataskápum og nýtt parket á gólfi.

Eldhús er nýlega uppgert með fallegri hvítri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á milli skápa og á gólfi.

Stofa er með nýtt parket á gólfi og útgengi á svalir.

Hjónaherbergi er með parket á gólfi.

Barnaherbergi er með parket á gólfi.

Baðherbergi er nýlega uppgert með hita í gólfi, baðkari, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Flísar á gólfi og hluta veggja.

Geymsla/þvottahús er innangengt úr eldhúsi.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign hússins.

Um er að ræða fallega íbúð á góðum stað í Laugarneshverfinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða á netfanginu kristin@trausti.is eða Katarzyna Kleinschmidt aðstoðarmaður fasteignasala í síma 774-2730 eða á netfanginu katarzyna@trausti.is