Hólavegur 10

550 Sauðárkrókur

Ásett verð: 29.900.000 kr.

Hólavegur 10
Tegund
Parhús
Stærð
67,9 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1948
Fermetraverð
440.353 kr.

Lýsing

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina Hólaveg 10B, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.

Þriggja herbergja íbúð í parhúsi á einni hæð, alls 67,9 fm.

Leigulóð hússins alls 850 fm.

Fasteignin skiptist í tvö herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, geymslu, forstofu og sameiginlegt þvottahús.

Komið inn í flísalagða forstofu og þar inn af er flísalagður gangur.

Við gang eru tvö parketlögð herbergi, eldhús, stofa, geymsla og baðherbergi .

Herbergi eru bæði parketlögð og skápar í einu herbergi.

Eldhús er parketlagt með upprunalegri innréttingu og inn af því er sameiginlegt þvottahús.

Stofa er parketlögð.

Í þvottahúsi er hægt að komast upp á geymsluloft. Lúga upp á geymsluloft er frá þvottahúsi.

Baðherbergi er flísalagt með hvítum tækjum og baðkari. Gólf baðherbergis var flísalagt árið 2018 ásamt því að settur var nýr vaskur og WC-skál. Geymsla er við gang þar sem er gömul rafmagnstafla með lekaliða.

Kjallari er undir íbúðinni. Hleri í kjallara úr geymslu.

Þakjárn og rennur sýnist í lagi en þakkanntur var endurnýjaður árið 2018.

Gluggar voru endurnýjaðir í kringum aldamótin fyrir utan einn.

Raflagnir hafa verið endurnýjaðar.

Bílastæði norðan við hús fylgir íbúðinni.

Gengið inn baka til. Útidyrahurð gömul.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is

Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali

Ella Magga, aðstoðarmaður fasteignasala