17. Júnítorg 3

210 Garðabær

Ásett verð: 62.400.000 kr.

17. Júnítorg 3
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
65,1 m²
Herbergi
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2006
Fermetraverð
958.525 kr.

Lýsing

**Fyrir 50 ára og eldri**

Garðatorg eignamiðlun kynnir til sölu einstaklega bjarta og fallega 65,1 fm herbergja íbúð með verönd í snyrtilegu lyftuhúsi, fyrir 50 ára og eldri, við 17. Júnítorg 3 í Sjálandshverfinu í Garðabæ.

Hér er um að ræða vel skipulagða og rúmgóða eign í vönduðu fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2006. Íbúðin er falleg og rúmgóð með stofu, borðstofu og eldhúsi í björtu alrými með útgengi á verönd. Íbúðin er skráð sem stúdíóíbúð en er í raun 2 herbergja þar sem búið er að stúka af svefnaðstöðu og útbúa herbergi. Húsið sjálft er vandað með snyrtilegri sameign, lyftu, fallegum garði og sameiginlegum bílastæðum fyrir framan húsið.

Bókið skoðun: Unnur, s: 8660507 eða unnur@gardatorg.is

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfi og rúmgóður fataskápur.

Stofa, borðstofa og eldhús: Bjart alrými með fallegum gluggum, flísar og parketi á gólfi. Eldhúsinnrétting úr fallegri eik og gott skápapláss. Gengið er út á verönd úr stofu.

Svefnherbergi: Hefur verið stúkað af. Parketi á gólfi.

Baðherbergi: Rúmgott með fallegri innréttingu, góðu skápaplássi, sturtu, handklæðaofni og upphengdu salerni. Flísar á gólfi og veggjum. Inni á baðherbergi er gert ráð fyrir þvottaaðstöðu.

Breið hurðarop eru í íbúðinni og gott aðgengi fyrir hjólastóla.

Í kjallara er sérgeymsla og sameiginleg hjólageymsla.

Mörg sameiginleg bílastæði eru fyrir framan húsið.

Þetta er skemmtileg eign á þessum vinsæla og góða stað í hjarta Sjálandshverfisins þar sem stutt er í fjölbreytta þjónustu. Jónshús er handan götunnar en þar hefur Félag eldri borgara í Garðabæ haldið úti öflugu félagsstarfi um árabil. Íþróttamiðstöðin og sundlaugin í Ásgarði eru í göngufæri og stutt er í matvöruverslanir, veitingastaði, heilsugæslu, bókasafn og apótek í Litlatúni og á Garðatorgi. Í nágrenninu eru fallegar gönguleiðir um Sjálandið, meðfram strandlengjunni og nærliggjandi svæði.

Nánari upplýsingar veitir:

Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteinga- og skipasali, s: 8660507 eða unnur@gardatorg.is