Vesturgata 19
300 Akranes
Ásett verð: 51.000.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 111,9 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1932
- Fermetraverð
- 455.764 kr.
Lýsing
92,2 fm íbúð á annarri hæð í steinsteyptu fjölbýlishúsi byggðu árið 1932 ásamt 19,7 fm. herbergi í kjallara 19,7.
Húsið er á þremur hæðum auk kjallara og í því eru þrjár íbúðir.
Íbúðin skiptist í hol, tvö svefnherbergi, stofu, baðherbergi og eldhús. Rennihurð er á milli annars svefnherbergisins og stofu.
Ágætar innréttingar eru í íbúðinni og á gólfum eru parket og flísar. Verið er að undirbúa lagningu gólfhita og hefur parket verið fjarlægt af stofugólfi.
Í kjallara er herbergi sem er leigt út. Þar er eldunaraðstaða og sturta, en salerni er í sameign. Í kjallara er einnig sameiginlegt þvottahús.
Búið er að endurnýja þrjá glugga í íbúðinni. Nýlegt járn er á þaki og verið er að leggja dren meðfram tveimur hliðum hússins.
Tvær hliðar hússins eru klæddar með plastklæðningu.
Frá íbúðinni er skemmtilegt útsýni.