Árakur 31

210 Garðabær

Ásett verð: 199.900.000 kr.

Árakur 31
Tegund
Raðhús
Stærð
248,89999961853 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2007
Fermetraverð
803.134 kr.

Lýsing

Glæsilegt 6 herbergja raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.

Um er að ræða sérlega fallega og vel skipulagða 248,9 fm eign á frábærum stað innarlega í lokuðum botnlanga. Af efri hæð er stórkostlegt útsýni til sjávar og yfir á Álftanes. Húsið er álklætt að utan og því nánast viðhaldsfrítt.

Neðri hæð

Forstofa : Rúmgóð með fatahengi og parketi á gólfi. Innangengt er í góðan bílskúr.

Gestasalerni : Flísalagt í hólf og gólf, með sturtu og snyrtilegri innréttingu.

Forstofuherbergi : Með góðum skápum og parketi.

Eldhús : Einstaklega rúmgott og glæsilegt með svartri háglansinnréttingu, kvartz borðplötu og vönduðum tækjum úr Pininfarina-línu Gorenje.

Stofa og borðstofa : Samliggjandi eldhúsi með parketi og útgengi út á sólríkan pall.

Sólpallur: Vandaður, um 90 fm sólpallur til suðaustur ásamt heitum potti. Möguleiki að stækka pallinn um sirka 10 fm.

Hellulagt bílaplan með hita og möguleika á að stækka það fyrir allt að þrjá bíla.

Efri hæð

Stigi : Steyptur og teppalagður stigi með fallegu stálhandriði.

Baðherbergi : Stórt og flísalagt í hólf og gólf, með bæði baðkari og sturtu.

Þvottahús : Gott þvottahús með innréttingu.

Hjónaherbergi: Rúmgott með sér fataherbergi, parketi á gólfi og útgengi á stórar svalir til suðurs.

Svefnherbergi II : Rúmgott herbergi með góðum skápum og parketi.

Svefnherbergi III : Mjög stórt herbergi (21 fm) með góðum skápum og parketi.

Sjónvarpsherbergi: Parket á gólfi og útgengi á svalir til vesturs með útsýni á Bessastaði (auðvelt að breyta í svefnherbergi).

Niðurlag : Þetta glæsilega fjölskylduhús stendur á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað með stutt í alla þjónustu

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA GUNNAR VALSSON LÖGG FASTEIGNASALI Í S: 699-3702 / GUNNAR@FASTLIND.IS EÐA HRAFN VALDÍSARSON LÖGG FASTEIGNASALI Í S: 8459888 / HRAFN@FASTLIND.IS