Skeljanes 6

102 Reykjavík

Skeljanes 6
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
217 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Byggingarár
1930

Lýsing

RE/MAX & Bjarný Björg Arnórsdóttir Lgf kynnir:

Sérlega vel skipulagða og bjarta 4ra herbergja hæð með sér stúdíóíbúð á einum eftirsóttasta stað Skerjafirði í Reykjavík. Eignin er samtals 217,0 fm samkvæmt HMS og stendur í reisulegu húsi í hjarta Skerjafjarðar, stutt í skóla, leikskóla, þjónustu og falleg útivistarsvæði.

Eign með góðar leigutekjur sem vert er að skoða!

Nánari upplýsingar gefur :

Bjarný Björg Arnórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 / bjarny@remax.is

SMELLTU HÉR og skoðaðu Aðalíbúðina í 3 - D, Þrívíðu umhverfi

SMELLTU HÉR og skoðaðu Stúdíóíbúðina í 3 - D, Þrívíðu umhverfi

Helstu kostir eignarinnar:

✅ Fallegt og rúmgott skipulag

✅ Tvær bjartar stofur með útgengi á svalir

✅ Þrjú svefnherbergi + stúdíóíbúð með sérinngangi

✅ Bjart eldhús með góðu útsýni

✅ Stórir gluggar sem hleypa inn náttúrulegri birtu

✅ Frábær staðsetning í grónu og vinsælu hverfi

Nánari lýsing á eigninni:

Aðalíbúðin – 140,5 fm (samkvæmt HMS)

Eignin er vel skipulögð og rúmgóð með björtum og fallegum rýmum.

Inngangur : Sameiginlegur, snyrtilegur inngangur með fallegum gluggum og teppi á gólfi.

Forstofu fataherbergi : Rúmgott geymslurými fyrir útiföt og skó, staðsett við stigapall framan við íbúðina.

Hol : Rúmgott og miðlæg rými sem tengir saman íbúðina.

Hjónaherbergi : Rúmgott svefnherbergi með ljósu teppi, fataskápum og útgengi á svalir.

Barnaherbergi (2): Tvö rúmgóð barnaherbergi með parketi á gólfi.

Stofur (2) : Tvær samliggjandi og bjartar stofur með parketi á gólfi.

Eldhús : Bjart eldhús með fallegri, hvítri innréttingu, eikar borðplötu og stórum gluggum sem veita mikið náttúrulegt ljós og útsýni.

Baðherbergi : Flísalagt baðherbergi með baðkari, sturtu og innréttingu.

Þvottahús : Sér þvottahús með auka salerni og aðstöðu fyrir vask.

Geymslurými : Sérgeymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjólageymslu.

Stúdíóíbúð með sérinngangi – 71,6 fm

Íbúðin er skráð sem geymsla samkvæmt HMS en hefur verið innréttuð sem fullbúin stúdíóíbúð með lágt til lofts.

Eldhús : Nýlegt, stílhreint hvítt eldhús með góðu skápaplássi.

Baðherbergi : Flísalagt baðherbergi með sturtuklefa.

Þessi eign býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og er tilvalin fyrir þá sem vilja leigutekjur samhliða eigin búsetu.

Endurbætur og viðhald á seinustu árum:

2024

# Þvottahús (minna baðherbergi) í íbúð gert upp ( nýtt klósett,innrétting,speglaskápur,flísar ) ekki klárað (eftir að setja vaskaborð, vask og blöndunartæki og klára frágang í kringum innréttingu)

# Nyjar hurðar og húnar í íbúð (5 stk) frá Birgisson

2023

# Þak málað og yfirfarið

2022

# íbúð máluð

2021

# ný eldhúsinnrétting í kjallaraíbúð og hún máluð

2019

# Drenað í kringum hús - allar hliðar nema hluti af norður hlið

# Garður tekinn í gegn

# Settur pottur (hitaveituskel) sameign hússins

# Girðing í kringum hús

# Hellulagt (innkeyrsla og f. framan hús)

# Smíðað hjólaskýli

# Sameign máluð

# nýr vaskaskápur, vaskur, skápur í baðherbergi í kjallaraíbúð

2012

# Nýir gluggar á suðurhlið

# settar svalir

# Nýtt gler í allt nema kjallara

# Allt rafmagn nýtt

# Nýjar lagnir í eldhús

# Sett eldvarnareinangrun á milli hæða,eldvarnarhurðar í íbúðir

# Parket (Birgisson) sett á alla íbúðina nema hjónaherbergi

Ekkert formlegt húsfélag er starfandi í húsinu.

Rafmagn á sameign sameiginlegt

Hiti í húsinu sameiginlegur - skipt eftir hlutfalli.

Húsið er byggt úr Holsteini.

Nánari upplýsingar gefur :

Bjarný Björg Arnórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 / bjarny@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.