Tunguhella 6

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 117.900.000 kr.

Tunguhella 6
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
337,5 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
2027
Fermetraverð
349.333 kr.

Lýsing

Erling Proppé lgf. & REMAX kynnir glæsileg iðnaðar- og geymslubil með góðum sérafnotareit við Tunguhellu 6 í Hafnarfirði. Vandaður verktaki, FimmX Verk, stendur að verkefninu, sem samanstendur af tveimur húsum með fjórum bilum í hvoru.

Hvert bil er áætlað 337,5 m² þar af er 112.5 milliloft.

Sérstakt forsöluverð er á þessum eignum til 1.Janúar 2027 fyrir þá sem koma snemma inn í verkefnið. Samkvæmt verðlista hækkar fermetraverðið um 5% þann 1. janúar 2027.

Nánari upplýsingar veitir Erling Proppé, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX, í síma 690 1300 eða á erling@remax.is

Vinnusalur á jarðhæð og sérinngangur að millilofti

Hvert bil er 11,25 m breitt og 20 m djúpt. Gert er ráð fyrir 4,5 × 4,2 m innkeyrsluhurð að vinnusalnum og er aftari helmingur hans opinn upp í þak. Á jarðhæð eru jafnframt anddyri og salerni. Endabilin hafa auk þess hliðarglugga sem veita dagsbirtu inn í salinn og aukainngang á hlið hússins.

Úr anddyrinu liggur stigi beint upp á lokað milliloft. Þannig geta starfsfólk og gestir gengið beint upp í skrifstofu- eða kaffiaðstöðu án þess að fara um vinnusalinn. Af milliloftinu er útsýni yfir salinn og útgengt á svalir. Gert er ráð fyrir að milliloftið verði afhent tilbúið til innréttingar svo kaupandi geti mótað aðstöðuna að þörfum rekstrarins en einnig er boðið upp á að fá efri hæðirnar innréttaðar að óskum kaupanda.

Lóð og stækkunarmöguleikar

Á lóðinni er gert ráð fyrir afnotareitum við hvert bil. Sameiginlegar akleiðir liggja utan þeirra. Samkvæmt afstöðumynd eru um 18 m framan við fremra húsið og 20 m milli húsanna.. Bílastæði eru innan þessara svæða. Fyrirtæki sem þurfa meira rými geta sameinað samliggjandi bil, með fyrirvara um samþykki og endanlega brunahönnun.

Allar eignir verða með þinglýstri VSK-kvöð.

Verkefnið er í undirbúningi. Endanleg hönnun, leyfi, skráð flatarmál og afhendingartími liggja enn ekki fyrir. Endanlegt kaupverð miðast við samþykkt flatarmál og kaupskilmála. Sjá grunnmyndir, afstöðumynd og verðlista hjá [link]

Nánari upplýsingar veitir Erling Proppé, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX, í síma 690 1300 eða á erling@remax.is.