Skarðshlíð 30a

603 Akureyri

Ásett verð: 51.900.000 kr.

Skarðshlíð 30a
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
96,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1969
Fermetraverð
538.382 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Skarðshlíð 30a - Björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með góðu aðgengi á vinsælum stað í Glerárhverfi - stærð 96,4 m².

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvösvefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sér geymslu í kjallara.

Nánari lýsing:

Forstofan er opin með parketi á gólfi og þar af er hol með tvöföldum hvítum fataskáp.

Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og stórum gluggum sem gera rýmið bjart og notalegt.

Eldhúsið er með parketi á gólfi, grárri L-laga innréttingu með flísum á milli skápa, góðu bekkjar og skápaplássi, borðkrók og glugga sem veitir góða birtu.

Svefnherbergin eru tvö , bæði með plast parketi á gólfi og tvöföldum fataskápum. Úr öðru herberginu er gegnið út á flísalagðar suður svalir.

Baðherbergið var endurnýjað 2020 með flísum á gólfi og veggjum, sturtu með glervæng, vegghengdu wc, handklæðaofni og innréttingu með handlaug.

Þvottahúsið er með máluðu gólfi og hillu og skápa plássi.

Sér geymsla er í kjallara sem er mjög stór og getur nýst á margvíslegan hátt.

Annað:

- Baðherbergið allt endurnýjað 2022

- Blokkin öll máluð sumar 2026

- Björt og rúmgóð íbúð á jarðhæð með góðu aðgengi

- Frábær staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði Þórs og Bónus verslun

Nánari upplýsingar veitir:

Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.