Vatnsendi Ólafsfirði

626 Ólafsfjörður

Ásett verð: 96.700.000 kr.

Vatnsendi Ólafsfirði
Tegund
Lóð
Stærð
3303088,59999847 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Fermetraverð
29 kr.

Lýsing

EIGNAVER 460-6060.

Vatnsendi - Ólafsfirði.

Til sölu jörðin Vatnsendi í Ólafsfirði, jörðin er um 317 hektarar að stærð, þar af eru 13,3 hektarar skráðir sem ræktað land.

Á jörðinni stendur 88,6 fm. sumarhús sem var byggt 2012, falleg eign á einstökum stað.

Silungsveiðiréttur fylgir eigninni.

Bústaðurinn er með þremur svefnherbergjum, rúmgóðu baðherbergi með sturtu, eldhús, borðstofa og stofa eru í einu rými, upptekin loft og stórir og góðir gluggar í alrými þar sem hægt er að njóta dásamlegs útsýnis til fulls.

Stór og góð verönd er við húsið og þar er heitur pottur.

Nánari lýsing;

Forstofa , flísar á gólfi og fatahengi

Svefnherbergi , eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum.

Baðherbergi , flísar á gólfi og hluta veggja, góð sturta, útgönguhurð út á verönd þar sem er heitur pottur.

Alrými, stofa eldhús og borðstofa , parket á gólfi, upptekin loft, eikar eldhúsinnrétting.

Þvottahús/geymsla , gengið inn af verönd, flísar á gólfi og hillur. Inntaksrými lagna.

Verönd til suðurs og vesturs, heitur pottur og frábært útsýni.

Annað;

- Gólfhiti

- Stór verönd með heitum potti.

- Innbú getur fylgt með við kaupin.

- Húsið hannað með algilda hönnun í huga.

Eins og áður sagði er jörðin 317 hektarar, þar af eru 13,3 hektara sem eru skráðir sem ræktað land. Henni fylgir einnig silungsveiðiréttur í vatninu sem gefur arðgreiðslur auk þess að landeigendur hafa skv. samningi rétt til að veiða í vatninu.

Jörðin hentar einnig vel til skotveiði, auk þess er mikil berjaspretta á svæðinu.

Fyrir allmörgum árum var borað fyrir heitu vatni og fannst um 34 gráðu heitt vatn, það er notað til að hita upp húsið en í því eru gólfhitalagnir. Einnig er það notað sem neysluvatn en til að hækka hitann er það kynnt upp með rafmagni.

Jörðin er í einkasölu hjá Eignaveri.

Nánari upplýsingar veita;

Arnar s; 898-7011 / arnar@eignaver.is

Begga s; 845-0671 / begga@eignaver.is

Tryggvi s; 862-7919 / tryggvi @eignaver.is