Klapparstígur 3

600 Akureyri

Ásett verð: 142.000.000 kr.

Klapparstígur 3
Tegund
Einbýlishús
Stærð
218 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1933
Fermetraverð
651.376 kr.

Lýsing

Eignaver 460-6060

Klapparstígur 3 Akureyri. **** Bókið einkaskoðun ****

Mjög gott, bjart og vel viðhaldið 218 fm einbýlishús á þremur hæðum á einum besta útsýnistað bæjarins. Stutt er í alla þjónustu og fjölbreytt mannlíf.

Nánari lýsing:

Miðhæð:

Forstofa flísar á gólfi, fatahengi, gólfhiti.

Hol/gangur parket á gólfi.

Stofa og borðstofa koma saman í rúmgóðu rými, parket á gólfi, fallegt útsýni.

Eldhús korkflísar á gólfi, mjög fín innrétting með góðu vinnuplássi, borðkrókur, úr eldhúsi er gengið út á góða timburverönd sem snýr í suðvestur. Verönd er yfirbyggð að hluta.

Snyrting dúkur á gólfi, upphengt wc, lítil vaskainnrétting, skápar, loftræsting.

Efri hæð:

Stigi upp með teppi. Úr stigaholi er gengið út suðvestursvalir.

Gangur með parketi.

Þrjú rúmgóð herbergi, öll með parketi á gólfum, fataskápar í tveimur herbergjum.

Stofa með parketi, glæsilegt útsýni þar sem fjallahringurinn fær að skarta sínu fegursta. Stofu mætti nýta sem fjórða herbergi á hæðinni. Góðir fataskápar.

Baðherbergi flísar á gólfi, rúmgóður sturtuklefi, upphengt wc, góð innrétting, gluggi. Hiti í gólfi.

Kjallari:

Stigi niður, teppi.

Hol/ gangur parket á gólfi.

Snyrting flísar á gólfi, lítil innrétting, upphengt wc, gólfhiti. Loftræsting.

Svefnherbergi er rúmgott, parket á gólfi.

Þvottahús er mjög rúmgott, flísar á gólfi, gluggi. þvottavél og þurrkari í vinnuhæð.

Geymslur eru tvær önnur mjög rúmgóð, parket á gólfi og góðar hillur. Hin er sýnu minni, parket á gólfi, hillur.

Köld geymsla undir útidyratröppum, steypt gólf, hillur.

Sérinngangur inn í kjallara er á norðurhlið eignarinnar, gangur með flísum, gólfhiti.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð frá 1986 og allt viðhald hefur verið unnið af fagmönnum s.s málning, múr, pípulagnir, rafmagn og trésmíði. ( Þegar gluggar, hurðir og listar var endurnýjað þá var horft til upprunalegs útlits )

Þak var endurnýjað 1995 jafnframt var þá sett ný einangrun og gluggar endurnýjaðir 2003

Annað:

- Vönduð eign í hjarta bæjarins.

- Varmaskiptir á miðstöðvarlögnum.

- Stutt í miðbæinn.

- Hiti í bílastæði að norðan.

- Lofthæð í kjallara ca 205 - 220 cm

- Geymsluskúr ca 10 fm á lóð fylgir með.

- Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Nánari upplýsingar hjá eftirtöldum aðilum :

Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is

Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is

Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is