Garðsendi 3

108 Reykjavík

Ásett verð: 86.900.000 kr.

Garðsendi 3
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
101,8 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1960
Fermetraverð
853.635 kr.

Lýsing

Móeiður og Miklaborg kynna í einkasölu:

Einstaklega fallega og mikið endurnýjaða 101,8 fm 3–4 herbergja jarðhæðaríbúð með stórum 20 fm sólpalli sem snýr í hásuður við Garðsenda 3, miðsvæðis í Reykjavík.

Um er að ræða vel skipulagða og bjarta eign í húsi sem hefur verið nánast endurnýjað frá grunni á síðustu árum .

Bókaðu skoðun! Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Jarðhæð með stórum sólpalli í hásuður – mikið endurnýjuð íbúð í nánast endurnýjuðu húsi.

Rúmgott og bjart alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús tengjast með stórum gluggum til suðurs.

Úr stofu er gengið út á glæsilegan um 20 fm sólpall sem snýr í hásuður og nýtur sólar frá morgni og fram á kvöld. Einnig er 100 fm sameiginlegur sólpallur!

Íbúðin er með tvö góð svefnherbergi með stórum fataskápum og möguleika á að bæta við þriðja herberginu .

Fallegt eldhús með eyju og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél .

Baðherbergið hefur verið mjög smekklega endurnýjað með flísum á gólfi og veggjum, walk-in sturtu með gleri, vegghengdu salerni og fallegri innréttingu.

Við hlið þess er þvottaherbergi með glugga og góðri aðstöðu.

Geymsla er innan íbúðar og gólfhiti er í allri íbúðinni.

Allt húsið er nýklætt að framan og aftan

Miklar endurbætur

Íbúðin hefur verið endurnýjuð frá grunni, m.a. með jarðvegsskiptum, nýjum gólfum með gólfhita , nýrri einangrun, nýjum milliveggjum og nýjum innréttingum, hurðum og gólfefnum.

Húsið hefur einnig verið umfangsmikið endurnýjað á síðustu árum , m.a.:

þak og burðarvirki endurgert

allir gluggar og gler endurnýjuð

rafmagns- og vatnslagnir endurnýjaðar

nýtt dren og skólp út í götu

húsið múrað og málað að utan

lóð endurgerð með bílaplani, stéttum og tröppum með snjóbræðslu

Eignin er á góðum og rólegum stað miðsvæðis í Reykjavík , stutt í skóla, þjónustu og helstu samgönguleiðir.

Upplýsingar frá seljanda:

Seljandi mun klára eftirfarandi atriði innan við 3. mánuði eftir sölu

1. Mála þar sem þarf í geymslu og þvottaherbergi

2. Skipta um útidyrahurð

3. Klára sólpall alveg, þeas loka fyrir opið á milli sérafnotaréttar og sameignar með tröppu.

Umfram það býður hann upp á:

1. Fataskápar í svefnherbergjum mega fylgja með.

2. Skera út og setja upp glugg, bæta við 3. svefnherberginu - Gegn einhverju samkomulagi

3. Er almennt opinn gagnvart flestu ef upp koma séróskir

Hér er á ferðinni einstaklega vel heppnuð eign á mjög eftirsóttum fjölskyldustað í Reykjavík– frábært tækifæri til að eignast vandað og fallegt heimili.

Bókaðu skoðun! Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899-8278 eða moa@miklaborg.is