Eyrarskjól

471 Þingeyri

Ásett verð: 16.000.000 kr.

Eyrarskjól
Tegund
Sumarhús
Stærð
61,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1998
Fermetraverð
260.586 kr.

Lýsing

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - [link] kynnir til sölu - Sumarhúsið Eyrarskjól á Valseyri sem er staðsett inni við botn Dýrafjarðar í kyrrlátu og fallegu umhverfi, stuttur spölur er til Þingeyrar, Flateyrar og Ísafjarðar, einnig er örstutt í Dýrafjarðargöngin og inn í Arnarfjörð.

Í húsinu er sólarsella fyrir ljós og rafmagn. Sóló eldavél til kyndingar með olíu. Kalt vatn og gaskynding fyrir heitt vatn. Eignin stendur á 2500 m² leigulóð.

Forstofa með fatahengi og parketi á gólfi.

Inn af forstofunni er baðherbergi með sturtuklefa.

Opin stofa með spónaparketi á gólfi.

Eldhús með hvítri innréttingu, vaskur, Sóló eldavél, spónaparket á gólfi.

Tvö ágæt svefnherbergi með svefnplássi fyrir 4 samtals.

Rúmgóð sólstofa með frábæru útsýni yfir fjörðinn.

Stór sólpallur með skjólveggjum og heitum potti sem er kyntur með timburofni.

Góður geymsluskúr.

Innbú getur fylgt með samkvæmt samkomulagi.