Valshlíð 12

102 Reykjavík

Ásett verð: 84.900.000 kr.

Valshlíð 12
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
78 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2020
Fermetraverð
1.088.462 kr.

Lýsing

Betri Stofan fasteignasala og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is kynna: 2ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu við Valshlíð 12, merkt 217. Aukin lofthæð, gólfsíðir gluggar, vandaðar innréttingar frá JKE design, ljósahönnun frá Lumex, Miele tæki, Quartz borðplötur í eldhúsi og á baði. Við hlið íbúðar eru sameiginlegar svalir sem snúa inn í garðinn

Laus við kaupsamning.

Nánari lýsing:

Anddyri með fataskáp.

Hjónaherbergi með góðu skápaplássi.

Stofa og eldhús eru í opnu rými og útgengt út á suðursvalir.

Baðherbergi með sturtu, og þvottaaðstöðu. Fataskápur í holi.

Sérgeymsla 6,7 fermetrar.

Sér bílastæði .

LÝSING almenn:

HÖNNUÐIR: Húsin eru hönnuð af Alark Arkitektum og innanhúshönnun er af M/Studio Reykjavík. Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum.

HÚSIÐ: Húsið er klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir danskir ál-tré gluggar frá Velfac sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.

ÍBÚÐIN: Aukin lofthæð, 280 cm og gólfsíðir gluggar. Vandaðar Innréttingar frá danska fyrirtækinu JKE design. Quartz borðplötur í eldhúsi og á baðherbergi frá Granítsmiðjunni. Lýsing er hönnuð af Lumex. bakaraofn og helluborð eru frá Miele.Ísskápur með frysti og uppþvottavél frá AEG. Blöndunar- og hreinlætistæki frá Tengi.

SAMEIGINLEGUR GARÐUR: Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. Bekkir og leiksvæði með leiktækjum og mjúku undirlagi.

Bókið skoðun: Jason Kristinn sími 7751515 og Guðbjörg sími 8995533