Urriðaholtsstræti 30

210 Garðabær

Ásett verð: 82.900.000 kr.

Urriðaholtsstræti 30
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
89,9 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2020
Fermetraverð
922.136 kr.

Lýsing

Glæsileg og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð ( gengið beint inn frá bílaplani) í nýlegu lyftuhúsi með 10,5fm. sérafnotareit og sérmerktu bílastæði á lóð. Sérþvottahús er innan íbúðar. Geymsla er á hæð íbúðar. Bílahleðslustöðvar eru á bílastæði.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 89,9 fm. og þar af er geymsla 6,2 fm. Sérafnotareitur er ekki inn í fermetratölu íbúðarinnar.

Nánari lýsing:

Anddyri með fataskáp og parket á gólfi.

Stofa/Borðstofa opið og bjart rými með stórum gluggum og parket á gólfi. Útgengt er úr stofunni út á sérafnotareit íbúðarinnar.

Eldhús með fallegri innréttingu, innfelld uppþvottavél, spanhelluborð, gufugleypir, ofn og parket á gólfi.

Þvottahús er innan íbúðar með vinnuborði með vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.

Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.

Herbergi rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.

Baðherbergi með innangengri sturtu með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofn, upphengt salerni og flísar á gólfi og veggjum að hluta. Gólfhiti.

Geymsla er á hæð íbúðar og því mjög gott aðgengi.

Sérafnotareitur skráður 10,5 fm.

Bílastæði íbúðar er sérmerkt á bílaplani.

Hjóla- og vagnageymsla snyrtileg og rúmgóð með hilluplássi fyrir hverja eign.

Lóðin er fullfrágengin og sameiginlegur garður.

Húsið: Húsið er 5 hæða fjölbýlishús með 13 íbúðum, einum stigagangi og einni lyftu. Heildarfjöldi bílastæða er 25. 15 bílastæði eru á lóð og 10 stæði í lokuðu bílastæðahúsi. Hönnun hússins er samkvæmt kröfum til algildrar hönnunar og því auðvelt að aðlaga það að þörfum hreyfihamlaðra til búsetu. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með álklæðningu. Gluggar og hurðir eru ál/tré og því húsið viðhaldslítið.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is