Orkureitur - D2-202

108 Reykjavík

Ásett verð: 89.900.000 kr.

Orkureitur - D2-202
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
87,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2026
Fermetraverð
1.028.604 kr.

Lýsing

Eignamiðlun og Safír byggingar ehf kynna með stolti nýjar íbúðir í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Næg bílastæði í bílakjallara.

Orkureitur - D2-202 , íbúð 02-02 er 3 herbergja, 87.4 fm íbúð.

NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Gunnar Bergmann í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is

Smellið hér til að skoða heimasíðu verkefnisins Orkureiturinn.is

Orkureitur - D2-202 , íbúð 02-02 er 87.4 fm 3 herbergja íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á einstaklega góðum stað rétt við Laugardalinn.

Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 87.4 fm með sérgeymslu í kjallara hússins.

Innréttingaþema er Safír klassík (200). Þrjú innréttingaþemu frá Nobilia (Lser). Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora.

Afhending íbúðanna : við kaupsamning

Nánar um Orkureitinn:

Bjartar og vel hannaðar íbúðir

Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.

Framtíðarheimili á Orkureitnum

Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“. Jafnframt er stefnt að því að allar íbúðir á reitnum verði Svansvottaðar.

Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.