Meistaravellir 15

107 Reykjavík

Ásett verð: 118.490.000 kr.

Meistaravellir 15
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
154,70000038147 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1965
Fermetraverð
765.934 kr.

Lýsing

Mikið endurnýjuð útsýnisperla, 5 herbergja endaíbúð með bílskúr í góðu húsi við Meistaravelli 15, Vesturbænum Rvk.

* Bílskúr skráður 23,6 m2

* Endurnýjað eldhús, parket og þvottahús uppgert með sturtu

* Stórir gluggar og fallegt útsýni til tveggja átta úr stofu

* 4 svefnherbergi

Viðhald hússins síðastliðin ár tiltelur ma.

2024 var rafmagnstafla í sameign endurnýjuð, frárennslislagnir yfirfarnar og endurnýjaðar að hluta.

2020-21 var húsið múrviðgert og málað að utan, endurnýjað gler og gluggar eftir þörfum, þakjárn yfirfarið endurbætt og málað. Endurnýjaðar þakrennur og niðurföll.

Nánari upplýsingar veita:

Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð samkv. HMS er 154,70 og þar af er íbúðin skráð 125,1 m2, sérgeymsla í sameign 6 m2 og bílskúr skráður 23,6 m2.

Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu / borðstofu, tvennar svalir, gang, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.

Anddyri er með parket á gólfi og fataskáp. Aukafataskápur er á stigapalli fyrir framan íbúð.

Eldhús er með sérsmíðaðri innréttingu frá Kvikk, virkilega gott skápapláss. Tvöfaldur bakarofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti. Parket á gólfi.

Stofa / borðstofa er opin að hluta með eldhúsi. Parket á gólfi og útgengt út á skjólgóðar Svalir til suð-vesturs.

Gangur er með parket á gólfi.

Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskáp. Gluggar í tvær áttir og útgengt á Svalir til norðurs.

Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi.

Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi og fataskáp.

Svefnherbergi 4 er með parket á gólfi og góðu rými fyrir fatahengi.

Þvottahús er þar fyrir innan með, flísalagt og með góðri innréttingu með skolvask og tengi fyrir þvottavél / þurrkara, "walk-in" sturta

Baðherbergi er flísalagt með innréttingu með skúffum og skolvask, salerni, baðkari með sturtu-aðstöðu.

Bílskúr er upphitaður með heitu / köldu vatni.

Í sameign í kjallara er sérgeymsla íbúðar og einnig hjóla / vagnageymsla.

Rúmgott, malbikað bílaplan og hellulögð stétt með snjóbræðslu upp við húsið. Stór, graslagður garður með sameiginlegu trampólíni.

Vinsæl og fjölskylduvæn saðsetning og örstutt í leik og grunnskóla, Háskóla Íslands, Sundlaug Vesturbæjar, íþróttasvæði KR, verslanir og þjónustu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.