Skerplugata 9
102 Reykjavík
Ásett verð: 229.900.000 kr.

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 260,599999237061 m²
- Herbergi
- 9
- Svefnherbergi
- 5
- Baðherbergi
- 3
- Byggingarár
- 1908
- Fermetraverð
- 882.195 kr.
Lýsing
Valhöll og Vilborg kynna í einkasölu :
EINSTAKLEGA FALLEGT EINBÝLISHÚS Á TVEIMUR HÆÐUM AÐ SKERPLUGÖTU 9, 102 REYKJAVÍK, ÁSAMT TVEIMUR AUKAÍBÚÐUM, BÁÐAR MEÐ SÉRINNGANGI.
HÉR ER UM AÐ RÆÐA HÚS SEM SKIPTIST Í: ÍBÚÐ Á TVEIMUR HÆÐUM ÁSAMT RISLOFTI.
2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Í KJALLARA. (Steyptur 1989).
2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Í SÉR HÚSI Á LÓÐ. (Byggt 2020).
Húsið stóð upphaflega að Bergsstaðastræti 6c. Það var byggt 1908 og er svokallað katalókahús. Það er byggt úr sérsniðnum norskum við. Slík hús þykja mjög sterkbyggð, allir burðarbitar mjög traustir.
Húsið var flutt af upprunalegum stað á ný-steyptan kjallara að Skerplugötu 9, Litla-Skerjafirði árið 1989. Húsið var allt endurnýjað að utan sem innan, tréverk, þakjárn og gluggar og einangrað með steinull. Allar innréttingar voru hannaðar og smíðaðar nýjar að sögn seljenda. Lagnir í húsinu voru lagðar upp á nýtt, hitalagnir, rafmagn og skolpleiðslur að sögn seljanda. Húsinu hefur verið sérstaklega vel við haldið að sögn seljenda.
BÓKIÐ SKOÐUN HJÁ VILBORGU Í SÍMA 891 8660 EÐA VILBORG@VALHOLL.IS
GLÆSILEGUR SÓLSKÁLI HEFUR VERIÐ BYGGÐUR VIÐ HÚSIÐ.
FRÁ SÓLSKÁLA ER ÚTGENGI Í GARÐ.
FALLEGUR GRÓINN GARÐUR MEÐ HEITUM POTTI.
BÍLASTÆÐI Á LÓÐ.
HÚSIÐ ER ALLS 260,6 FM SKV FASTEIGNASKRÁ EN HLUTI ÞESS ER UNDIR SÚÐ Þ.A.GÓLFFLÖTUR ER NOKKUÐ STÆRRI.
Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir,lgfs, sími 891 8660 / vilborg@valholl.is
HÚSIÐ SKIPTIST Í: HÆÐ 84,9 FM
RIS 66,6 FM (GÓLFFLÖTUR NOKKUÐ STÆRRI)
AUKABÍBÚÐ 70,3 FM, 2JA HERBERGJA Í KJALLARA. KJALLARINN ER STEYPTUR. SÉR-INNGANGUR.
ÍBÚÐ Í SÉR HÚSI 38,5 FM- BYGGT 2020 Á LÓÐINNI - 2JA HERBERGJA . HÚSIÐ ER STEYPT.
GEYMSLULOFT MEÐ GLUGGUM Í RISLOFTI - YFIR RISIHÆÐ. (EKKI MEÐ Í FERMETRAFJÖLDA)
Lóðin er alls 588 fm.
EFTIRFARANDI FRAMKVÆMDIR HAFA ÁTT SÉR STAÐ AÐ SÖGN SELJENDA: 2024: Húsið málað að utan.
2024: Þak málað, skipt um járn við kvisti, sem og þakrennur og niðurföll.
2023: Sólhýsi endurnýjað að hluta og skipt um gler í nokkrum gluggum. Álfellur á glerlistum.
2021: Sturtuklefi, eldhúsinnrétting og fataskápur endurnýjað í kjallaraíbúð.
2018: Baðherbergi uppi og gestasnyrtingin voru tekin í gegn.
1989: Húsið endurnýjað að talsverðu leiti að utan sem innan; tréverk, járn og gluggar og einangrað með steinull.
1989: Allar innréttingar hannaðar og smíðaðar nýjar.
1989: Lagnir í húsinu lagðar upp á nýtt, hitalagnir, rafmagn og skolpleiðslur.
Lýsing eignar:
Gengið er upp steinsteyptar tröppur. Hitalögn er í tröppunum, bæði á hæðinni og kjallaratröppum.
AÐALHÆÐ:
Hæðin er björt og falleg með glæsilegri sólstofu.
Forstofa : Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum skápum.
Gestasalerni: Úr forstofu er gengið inn á gestasnyrtingu, flísar á gólfi veggjum, handklæðaofn, keramikvaski og spegli sem og upphengdu salerni.
Eldhús: innréttingin er sérsmíðuð hjá Brúnás en var uppfærð að hluta að fengnum ráðleggingum frá Rut Káradóttir 2014. Flísar á gólfi.
Sólstofa er inn af eldhúsi sem nýtt er að hluta sem skemmtileg og björt borðstofa. Flísar á gólfi.
Stofur: Tvær bjartar og rúmgóðar stofur með sex gluggum, stofurnar eru samliggjandi með tvöfaldri sérsmíðaðri hurð með rúðum. Í annarri stofunni eru sér hannaðar bókahillur sem ramma inn millihurðina.
Gólfefni: Á forstofugólfi og eldhúsi er línoleumdúkur, en á stofum eru upprunaleg gólfborð, gegnheil fura.
Heitur pottur er í garði en úr sólhýsi á aðalhæð hússins er gengið út í garð. Þar er skemmtilegur steinhlaðinn bolli með heitum potti og aðstöðu fyrir grill.
EFRI HÆÐ/RIS:
Gengið er upp fallegan stiga úr alrými upp í efri hæð, að hluta undir súð.
Miðrými tengir saman svefnherbergin og baðherbergið.
Svefnherbergin eru þrjú. Öll mjög rúmgóð.
Fataskápar eru í tveimur herbergjanna. Hægt að fjölga herbergjum sé þörf á.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með sturtu og baðkari. Þar er einnig þvottaaðstaða. Útgengt er úr baðherbergi út á suðursvalir.
Geymsluloft: Yfir efri hæðinni er manngengt geymsluloft.
Veggir á efri hæð eru allir léttir og auðvelt að endurskipuleggja herbergjaskipan eftir þörfum.
Stétt fyrir framan inngang í húsið er upphituð sem og tröppur.
KJALLARI:
Í kjallara er um 65 fermetra, tveggja herbergja íbúð með sérinngangi:
Forstofa : Forstofan er flísalögð.
Eldhús með borðkrók.
Stofan er rúmgóð með harðparketi.
Baðherbergi e r flísalagt. Sturta er á baðherbergi. Tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi með fataskápum,
Geymsla er innan íbúðar í kjallara.
Þvottahús sem einnig er lagnaherbergi fyrir alla eignina.
Geymsla er undir útitröppum upphituð þar sem hiti er í tröppum.
Hurð skilur að aðalíbúð frá kjallara og því lítill vandi að sameina.
SÉRBÝLI / 2ja herbergja íbúð alls 38,5 fm á lóð.
Á lóðinni er steinsteypt sérbýli, byggt 2020 sem skiptist í stofu/eldlhús, svefnherbergi og baðherbergi:
Nánari lýsing:
Eldhús og stofa er í sama rými með góðum glugga sem snýr út að verönd framan við húsið.Vínilparket á gólfi.
Svefnherbergi er með gluggum, fataskáp og vínilparketi á gólfi.
Baðherbergi með sturtu og þvottaaðstaða. Gólfið er flotað sem og veggir.
Hellulögð verönd framan við stofu á sérbýli
Geymsluskúr á lóð hentugur fyrir hjól, verkfæri og grill.
Bílastæði fylgir húsinu
Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir, lgfs sími 891 8660 eða vilborg@valholl.is
Lóðin er skemmtileg með háum trjám og fallegum runnum.
Bílastæði fylgir húsinu og fyrir framan það eru nokkur stæði ætluð húsunum við enda götunnar. Húsið stendur í skemmtilegum botnlanga með torgi, þar sem gjarnan eru haldnar hverfishátíðir.
Við Skerplugötu eru eingöngu gömul hús, flutt úr miðbænum og endurgerð. Þarna er eins konar þorp, miðsvæðis í borginni. Gatan er einstaklega barnvæn. Arkitekt að endurbyggingu hússins er Sigríður Sigþórsdóttir.
Arkitekt að nýbyggingu á lóð er Friðrik Friðriksson, F arkitektar.
Aðstoð við endurnýjun á eldhúsi og alrými Rut Káradóttir
Byggingarefni eignar: Steyptur kjallari - 1989, timburhús tvær hæðir endurnýjað við flutning 1989 og steypt hús á lóð byggt 2020.
Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir, lgfs sími 891 8660 eða vilborg@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæslu…