Aðalbraut 46

675 Raufarhöfn

Ásett verð: 13.000.000 kr.

Aðalbraut 46
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
127,2 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1952
Fermetraverð
102.201 kr.

Lýsing

Á austurströnd Melrakkasléttu er Raufarhöfn, nyrsta alla þorpa á Íslandi. Hvergi á Íslandi verður vornóttin bjartari né vetrardagurinn myrkari. Heimskautsbaugur er rétt við ströndina og á ásnum fyrir ofan þorpið er Heimskautsgerðið, stærsta útilistaverk á Íslandi sem tvinnar saman íslenska menningu, bókmenntasögu og sígild vísindi við sérstæðar náttúruaðstæður.

Til sölu Aðalbraut 46 á Raufarhöfn, fastanr: 216-7046. Stigið inn í anddyri og þaðan inn í hol. Beint inn af holi eru tvær samliggjandi stofur, á vinstri hönd er lítið salerni og eldhús. á hægri hönd eru tvö herbergi. Eignarhlutinn er skráður sem fjögurra herbergja, 3 svefnherbergi og stofa er er í raun 2 svefnherbergi og tvær samliggjandi stofur. Undir rúmum helmingi hússins er kjallari, þar eru tvær geymslur sem tilheyra þessum eignarhluta, samtals 31,5 m². Þar er einnig þvottahús og kyndi-kompa, en þetta tvennt er sameign hússins.