Týsnes 14A-114

603 Akureyri

Ásett verð: 34.000.000 kr.

Týsnes 14A-114
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
76,7 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
443.286 kr.

Lýsing

Flott 77m2 geymslubil með innréttuðu rými á efri hæð.

Týsnes 14a eignarhluti 114

Flott staðsetning og frábært útsýni, nýlegt geymsluhús í norðvesturenda. Skemmtilega innréttað milliloft sem er um 24m2.

Gólfflötur er ca. 52m2 og heildarstærð er um 77m2.

Mjög stórir gluggar á vestuhlið gera húsnæðið mjög bjart og skemmtilegt til afnota.

Á neðri hæð eru einn stór salur en snyrting er klædd af með veggjum, þar eru handlaug og salerni.

Timbur stigi eru upp á milliloftið, harðparket á gólfi, um, lítil eldhúsinnrétting, baðherbergi með sturtuklefaog hvítum hreinlætistækjum, handlaug og salerni. 'ur alrými efri hæðar er gengið út á svalir mót suðvesti og vestri með afar fallegu útsýni, stórir gluggar eru á vesturhlið.

Bílaplan er malbikað og snjóbræðsla er um 3 metra út frá útveggjum.

Helstu mál skv. teikningum,

* Breidd 5,27 m

* Lengd 9,57 m

* Innkeyrsluhurð um 3,2 m á breidd og um 3,8 m á hæð. Útveggir eru klæddir með 80mm (micro áferð að utan/panill að innan) samlokueiningum með PIR kjarna.

Allir léttir innveggir (kringum snyrtingu) eru gerðir úr 100mm samlokueiningum.

Milliveggir milli rýmisnúmera eru 100mm samlokueiningar með harðpressaðri steinull og eru þær samkv. EI60.

Hitaveita: Ein hitaveitugrind/aflestrarmælir er fyrir allt húsið og er staðsetning mæla í sameiginlegu tæknirými.

Raflagnir: Aðaltafla rafmagns og einn aflestrarmælir ásamt frádráttarmælum eru staðsett í sameiginlegu tæknirými en sér greinatafla er í eignarhlutanum.

Á eigninni hvílir vsk-kvöð - Auglýst söluverð er tiltekið með vsk-kvöð.