Sogavegur 101

108 Reykjavík

Ásett verð: 54.900.000 kr.

Sogavegur 101
Stærð
72,3 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1966
Fermetraverð
759.336 kr.

Lýsing

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna fallega 2ja herbergja íbúð með sérinngangi í fjórbýlishúsi miðsvæðis í Reykjavík að Sogavegi 101. Eignin er á vinsælum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og leik-. grunn- og framhaldsskóla.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína.

Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 72,3, þar af er geymsla 3,1 fm.

Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu ásamt geymslu og þvottaherbergi.

Nánari lýsing:

Forstofa komið er inn í forstofu um sérinngang og flísar á gólfi.

Stofa er björt með stórum gluggum og parket á gólfi.

Eldhús með upprunalegri innréttingu, góðum borðkrók, ofn í vinnuhæð, viftu yfir helluborði og parket á gólfi.

Svefnherbergi er mjög rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.

Baðherbergi með innréttingu með handlaug og baðkar með sturtuaðstöðu, flísalagt í hólf og gólf.

Þvottahús við eldhús og þaðan aðgengi að sameign.

Geymsla við forstofu.

Um er að ræða vel staðsetta eign miðsvæðis í Reykjavík. Stutt er í alla verslun og þjónustu. Stutt í leikskóla (Vinagerði), grunnskóla (Réttarholtsskóli/Breiðagerðisskóli) og íþróttasvæði.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is