Kirkjuvegur 8

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 137.800.000 kr.

Kirkjuvegur 8
Tegund
Parhús
Stærð
163,200000762939 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1985
Fermetraverð
844.363 kr.

Lýsing

BÓKIÐ SKOÐUN - Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Í hjarta Hafnarfjarðar. Afar fallegt og skemmtilegt tvílyft parhús á þessum frábæra stað við Hellisgerði og í göngufæri við miðbæ Hafnarfirði. Húsið er samkvæmt þjóðskrá 123,5 fm auk sérstæður bílskúr 39,7 fm samtals stærð því 163,2 fm.

Góð aðkoma og þrjú sérbílastæði fyrir framan húsið. Ath: Gengið er inn í húsið Hellisgötumegin. (gegnt Hellisgerði). Ath: möguleiki að gera íbúð í bílskúr.

- Einstök staðsetning

- Þrjú herbergi

- Bílskúr

- Baðherbergi og gestasalerni

Húsið skiptist m.a. þannig: Sérinngangur, forstofa með skáp, flísar, hol, fallegt bjart eldhús með ljósum innréttingum frá Kvik, góð tæki, gaseldavél, flísar á milli skápa, björt falleg stofa/borðstofa, útgengt þaðan á stóra verönd/suðurgarðinn.

Fallegt baðherbergi/snyrting (möguleiki að gera sturtuaðstöðu) nýleg falleg innrétting og nýlegt salerni, flísar, gluggi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Efri hæð: Fallegur stigi, hol, gott hjónaherbergi með skáp og stórt barnaherbergi með skáp, og annað gott barnaherbergi. Öll herbergin er björt og falleg . Rúmgott baðherbergi með nýlegri innréttingu og nýlegu upphengdu salerni, baðkar, flísar. (möguleiki að hafa sturtuaðstöðu)

Þrír kvistir eru á efri hæðinni sem gefa húsinu flottan blæ.

Vandað harðparket og flísar á neðri hæð og gegnheilt parket á efri hæð.

Garður er fallegur (hraunlóð) snýr að mestu í suður og er nánast allur timbur/verönd, hellur meðfram húsi að sunnanverðu líka. Á pallinum er góður geymsluskúr. Einnig er góð verönd að framanverðu,

Bílskúr er rúmóður og bjartur, innkeyrsluhurð og gönguhurð. Tveir stórir gluggar.

Samkvæmt upplýsingum frá seljenda þá er eignin þó nokkuð endurnýjuð, m.a.

Eldhúsinnrétting ca 2010

2019 gluggar í bílskúr lagaðir

Gluggar málaðir að utan 2023-2024

Gluggar málaðir að innan í húsi 2024

Nýtt salerni á efri og neðri hæð 2024

Ný baðinnrétting á efri hæð 2025

Nýtt harðparket 2025 neðri hæð

2025 gluggar lagaðir í stofu að hluta

Stigi málaður 2025

Nýir gluggar í svefnherbergi í suður 2026

Eldhús, stigagangur, svefnherbergi, baðherbergi niðri og gangur uppi málað 2025 . Loft máluð uppi og baðherbergi niðri 2025.

Skipt um báru á kvistum 2025

Grindverk sett upp á milli húsa 2025

Nýr ofn í litla barnaherbergi 2026

Pallur olíuborin 2026

Nýr þakpappír á geymsluskúr 2026 skúr pússaður og olíuborinn

Borið á pallinn fyrir framan hús og grindverk fyrir framan húsið 2026

Nánari uppl gefur Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is

Skoðunarskylda :

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.