Klettás 3
210 Garðabær
Ásett verð: 133.000.000 kr.

- Tegund
- Raðhús
- Stærð
- 143,60000038147 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2002
- Fermetraverð
- 926.184 kr.
Lýsing
Garðatorg eignamiðlun kynnir:
Einstaklega bjart og fallegt raðhús á einni hæð við Klettás í Garðabæ. Mikil lofthæð og gott skipulag.
Stórt bílaplan, sérverönd, stórar stofur, sér þvottahús. Möguleiki að bæta við 2 herbergjum. Afhending við kaupsamning.
Nánar.
Forstofa: flísalögð með skápum. Innangengt í bílskúr (31,6 fm).
Alrými , mjög mikil lofthæð, parket á gólfi.
Eldhús: Viðarinnrétting með góðu skápaplássi, flísar á gólfi, rúmgóður borðkrókur við fallegan glugga.
Stofa og Borðstofa: Opnar og bjartar, mikil lofthæð, parket á gólfi, útgengi út á verönd og garð.
Milliloft: stigi uppá rúmlega 8fm milliloft sem nýtt er sem sjónvarpsrými.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð parketlögð svefnherbergi með skápum.
Baðherbergi: Rúmgott flísalagt baðherbergi, með viðarinnréttingu og skápum ásamt baðkari og sturtu.
Þvottahús: Flísalagt sér þvottahús með hvítri innréttingu, skápum og vinnuborði.
Bílskúr: 31,6 fm bílskúr, flísalagður með millilofti sem nýtt er sem geymsla, ásamt sérgeymslu aftast í bílskúr
Verönd: Timburverönd útgengt úr borðstofu baka til.
Bílaplan : Stórt hellulagt bílaplan með hitalögn.
Samkvæmt fasteignamati er eignin skráð 135,4fm, með millilofti er eignin rúmlega 144fm.
Allar upplýsingr veitir: Ragnar G Þórðarson ragnar@gardatorg.is s. 899 5901