Hrafnaklettur 4

310 Borgarnes

Ásett verð: 46.500.000 kr.

Hrafnaklettur 4
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
106,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1989
Fermetraverð
437.441 kr.

Lýsing

Nes fasteignasala kynnir eignina:

Hrafnaklettur 4, íbúð 301, 310 Borgarnes.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning!

Um er að ræða rúmgóða 4 herbergja íbúð á efstu hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi, byggt 1989. Íbúðin er 94,6 fm að stærð ásamt 11,7 fm sérgeymslu á geymslugangi í kjallara, samtals stærð 106,3 fm skv. skráningu HMS.

Rúmgóðar 7,8 fm SV svalir.

Sérmerkt bílastæði næst inngangi fylgir íbúðinni.

Sameiginlegt þvottahús og vagna- og hjólageymsla er í kjallara.

Íbúðin skiptist í forstofu/hol, á vinstri hönd er gangur með 3 svefnherbergjum og baðherbergi, á hægri hönd úr forstofu er gengið í eldhús með borðkrók og stofu/borðstofu.

Nánari lýsing:

Forstofa: Opið rými með innbyggðum hvítum fataskáp. Dúkur á gólfi.

Hjónaherbergi : Innbyggður þrefaldur fataskápur. Plastparket á gólfi

Svefnherbergi: Plastparket á gólfi fataskápar

Baðherbergi: Nýlega endurnýjað að öllu leyti, flísalagt í hólf og gólf, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, upphengd innrétting með speglaskáp, vegghengt salerni, handklæðaofn og walk in sturta .

Eldhús: Dúkur á gólfi, eldri innrétting með efri skápum. Eldhúskrókur.

Stofa: Dúkur á gólfi, björt og rúmgóð með fallegu útsýni. Gengið er út á SV svalir.

Geymsla: Rúmgóð með glugga, málað gólf.

Sameign: Anddyri, flísar á gólfum, teppalagur stigagangur, þvottahús og vagna/hjólageymsla.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.