Núpahraun 12

815 Þorlákshöfn

Ásett verð: 79.900.000 kr.

Núpahraun 12
Tegund
Raðhús
Stærð
138,99999961853 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
574.820 kr.

Lýsing

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424 ) kynnir: NÚPAHRAUN 12, ÞORLÁKSHÖFN, NÝTT, glæsilegt, endaraðhús með 2-3 svefnherbergjum og bílskúr. Húsið er einstaklega skemmtilega skipulagt og snýr stofan í suður/vestur ! Grænt svæði er á bak við húsið !

Loft eru upp tekin í húsinu, sem gerir það einstaklega bjart og skemmtilegt. Fallegir gólfsíðir gluggar og rennihurð eru í stofu og eldhúsi.

Möguleiki er á uppítöku á ódýrari eign.

(það athugist að myndir að innan eru úr húsi sem er spegilmynd þessa húss).

* Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com *

Húsið skiptist svo:

* Mjög rúmgott anddyri með flísum á gólfi og góðum skáp.

* Rúmgott eldhús með fallegri innréttingu með eyju. Innfelld uppþvottavél fylgir.

* Stofa og eldhús eru í opnu rými. Utangengt er úr stofunni í garðinn um rennihurð. Fallegt harðparket er á gólfi. Fallegir gólfsíðir gluggar eru í stofu og eldhúsi sem hleypa fallegri birtu inn í rýmið.

* Stórt sjónvarpshol.

* 2 -3 stór svefnherbergi með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum. Á mjög einfaldan hátt er hægt að loka sjónvarpsholinu og bæta við svefnherbergi.

** Loft eru upp tekin í húsinu og eru þau með innfelldri lýsingu.

* Baðherbergi með fallegri innréttingu, spegli og flísum á gólfi og veggjum og sturtu úr glerþili.

* Þvottahús er inn af baðherbergi. Flísar eru á gólfi og innrétting undir þvottavél og þurrkara. Utangengt er úr þvottahúsinu.

Á einfaldan hátt er hægt að loka milli baðherbergis og þvottahúss !

* Í loftum eru hvítar loftaþiljur. Húsið er málað að innan í ljósum lit.

* Allar innihurðar eru yfirfelldar, hvítar að lit.

* Gólfhitalagnir eru í húsinu. Stýringar og annar búnaður fylgir.

* Stór, fullfrágenginn bílskúr. Epoxy verður sett á gólf. Á einfaldan hátt er hægt að setja milliloft í bílskúrinn.

* Lóð þökulögð bakatil.

* Sorptunnuskýli frágengin. Möl er í bílaplani.

Húsið er klætt að utan með dökkgráu bárustáli og lerki, dökkgráum gluggum og hurðum og dökkgráu þakstáli!

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.

Heimasíða fasteignasölunnar: [link]

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:

Verslun KRÓNUNNAR

Apótekarann.

Bakaríið Kaffiskjóðan (facebook: kaffiskjóðan)

Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Veitingastaðina:

Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)

Caffe Bristól

Super1 Pizza

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:

Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:

Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.

Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.

Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.

Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring

Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours ([link] er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.

Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.

** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á: [link] og hamingjuhofn.is