Naustavör 7

200 Kópavogur

Ásett verð: 79.900.000 kr.

Naustavör 7
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
90,2 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2017
Fermetraverð
885.809 kr.

Lýsing

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:

Virkilega björt, vel skipulögð og vönduð 90,2 fermetra 2ja – 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með útgengi úr stofu á stóra viðarverönd til suðurs, vesturs og norðurs í nýlegu og vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu í þessu eftirsótta hverfi á Kársnesinu í Kópavogi.

Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Mjög góð aðkoma er að húsinu, fjöldi bílastæða á bílaplani og sameiginlegar hleðslustöðvar fyrir rafbíla. Sérgeymsla í kjallara fylgir íbúðinni.

Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / olafur@hibyli.is

Lýsing eignar:

Forstofa : flísalögð og með innbyggðum fata- og skóskápum.

Eldhús : er mjög bjart og rúmgott með góðri borðaðstöðu, miklum gluggum og góðri innréttingu með miklu skápaplássi, tveimur ofnum og innbyggðri uppþvottavél. Eyja með spanhelluborði, góðum hirslum og áfastri borðaðstöðu.

Samliggjandi stofur , mjög rúmgóðar og bjartar með miklum gluggum í tvær áttir og útgengi á um 50 fermetra viðarverönd með skjólveggum til suðurs, vesturs og norðurs. Mögulegt væri að útbúa auka svefnherbergi úr hluta af stofum.

Svefnherbergi , er rúmgott, parketlagt og með innbyggðum fataskápum í vegg.

Baðherbergi , rúmgott, flísalagt gólf og veggir, innrétting, handklæðaofn, vegghengt wc. og flísalögð sturta með sturtugleri. Innbyggð innrétting í vegg með skolvaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Innbyggð lýsing er í loftum íbúðarinnar og lofthæð í íbúðinni er meiri en gengur og gerist.

Í kjallara eru:

Sérgeymsla , sem er 7,6 fermetrar að stærð.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla með útgengi á lóð.

Lóðin er fullfrágengin með hitalögnum í gangstétt fyrir framan hús, mjög góðri aðkomu með fjölda bílastæða á malbikuðu stóru bílaplani og tveimur sameiginlegum rafhleðslustöðvum.

Byggingaraðili hússins var Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf . - [link]

Falleg og vönduð íbúð á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað á Kársnesinu - stutt í margvíslega þjónustu. Fallegar göngu/hlaupaleiðir og útivistarsvæði í nágrenninu.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is

Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is