Stuðlaberg 98

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 124.900.000 kr.

Stuðlaberg 98
Tegund
Raðhús
Stærð
169,9 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1989
Fermetraverð
735.138 kr.

Lýsing

Stuðlaberg 98 - Setberginu Hafnarfirði

*Seld með fyrirvara*

STOFAN FASTEIGNASALA kynnir bjart og fallegt endaraðhús með bílskúr við Stuðlaberg 98 í Setberginu.

Eignin er skráð samtals 169,9 fm skv. HMS, þar af er bílskúr 18 fm.

*Seljendur skoða skipti á minni eign í Setberginu*

Nánari upplýsingar hjá Guðný Ósk í síma 866 7070 eða á gudny@stofanfasteignir.is

Eignin skiptist í forstofu, forstofuherbergi, gestsalerni, hol/gang, eldhús og stofu (neðri hæð), á efri hæð eru 3 herbergi, sjónvarsphol, baðherbergi og þvottahús - svo er sérstæður bílskúr.

Endaraðhús með afgirtum grónum garði

Bílskúr

4 svefnherbergi

Nýtt eldhús og tæki

Rafmagn í eldhúsi endurnýjað (sértafla í eldhúsi) ásamt eru nýjar neysluvatnslagnir í eldhúsi

Ný gólfefni á gangi, eldhúsi og stofu á neðri hæð, sjónvarpsholi og herbergjum efri hæðar

Nýir þrýstijafnarar í hitagrind

Húsið múrviðgert og málað að utan, gluggar og þakkantur málað 2025

Neðri hæð

Komið er inn í forstofu , inn af forstofu er herbergi og gestasalerni. Búið er að hreinsa út úr þessum rýmum og þarf að standsetja.

Gangur / hol með harðparketi á gólfi.

Eldhús er opið og bjart með nýrri innréttingu og tækjum. Bakarofn í vinnuhæð, helluborð, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél, harðparket á gólfi.

Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt er í garðinn frá stofunni.

Gengið er upp parketlagðan stiga á efri hæð.

Rúmgott sjónvarpshol með harðparketi á gólfi.

Hjónaherbergi með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi. Útgengt er úr herberginu á svalir.

Tvö rúmgóð barnaherbergi , bæði með fataskápum og harðparketi á gólfi.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góð innrétting, salerni, baðkar og sturta.

Þvottahús á sömu hæð sem er með skolvask og flísum á gólfi.

Geymsluloft er yfir hluta efri hæðar.

Sérstæður bílskúr við húsið.

Stór og gróinn er við húsið, hellulagt fyrir framan og aftan hús.

Það sem hefur verið gert:

- Húsið múrviðgert og málað að utan 2025

- Gluggar og þakkantur málaðir 2025

- Skipt um eldhúsinnréttingu og tæki 2025. Á eftir að klára frágang í kringum innréttingu.

- Sett var sér rafmagnstafla í eldhús 2025

- Nýtt harðparket 2025

- Nýjir þrýstijafnarar í hitagrind 2025

- Ofnar yfirfarnir 2025/2026 (Skipt um pakkdósir og krana þar sem þarf)

- Nýtt neysluvatn í eldhús, nýjar lagnir lagðar upp á efri hæð, tilbúnar fyrir baðherbergi.

Þetta er frábært fjölskylduhús á góðum stað í Setberginu í Hafnarfirði þar sem stutt er í flesta þjónustu, Kaplakriki í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070 , gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080 , atli@stofanfasteignir.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.