Æsufell 6

111 Reykjavík

Ásett verð: 46.900.000 kr.

Æsufell 6
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
59,8 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1971
Fermetraverð
784.281 kr.

Lýsing

Æsufell 6. íb. 502, Reykjavík. Í einkasölu.

Um er að ræða 59,8 fm. tveggja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi að Æsufelli 6 í Reykjavík. Íbúðin skiptist í anddyri, opið eldhús og stofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar. Útgengt er á svalir úr svefnherbergi.

Nánari lýsing:

Anddyri: Plastparket á gólfi.

Eldhús og stofa: Eldhús og stofa eru í opnu og samliggjandi rými með plastparketi á gólfi. Í eldhúsi er eldri innrétting.

Svefnherbergi: Plastparket á gólfi og útgengt á svalir.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Þar er baðkar, salerni og innrétting með handlaug. Þar er tengi fyrir þvottavél.

Geymsla: Geymsla er innan íbúðar og með plastparketi á gólfi.

Á jarðhæð hússins er sameiginlegt þvottahús, sameiginlegt rými með sér frystihólfi, og hjólageymsla.

Stutt er frá eigninni í leikskóla og aðra helstu þjónustu.

Endurbætur og viðhald:

Inngangshurð íbúðarinnar var endurnýjuð árið 2021 og sett í hana þriggja punkta læsing.

Bakarofn og helluborð voru endurnýjuð árið 2021.

Ofn í svefnherbergi var endurnýjaður árið 2025.

Leigusamningur:

Íbúðin er nú í útleigu samkvæmt tímabundnum leigusamningi. Leigjandi hefur reynst traustur og hefur áhuga á að leigja íbúðina áfram, standi það til boða.