Dalbrekka 14

200 Kópavogur

Ásett verð: 63.000.000 kr.

Dalbrekka 14
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
67 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2019
Fermetraverð
940.299 kr.

Lýsing

Borg fasteignasala kynnir: Falleg og björt tveggja herbergja íbúð með bílastæði í kjallara við Dalbrekku 14 í Kópavogi. Yfirbyggðar svalir.

Nýleg og vel skipulögð íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er á frábærum stað, miðsvæðis í Kópavogi þar sem örstutt er í alla almenna þjónustu og samgönguæðar ásamt göngustígum og útivistarsvæðum. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílageymslu og rúmgóð sérgeymsla. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 56 m2 og geymslan 11m2. Samtals 67m2.

Nánari lýsing:

Inngangur: Gengið er beint inn í íbúðina frá sameign nálægt lyftunni.

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.

Eldhús: Falleg innrétting með spanhelluborði, gufugleypi og innbyggðri uppþvottavél. AEG ofn í borðhæð og ísskápur með frysti í innréttingu. Harðparket á gólfi.

Stofa: Stofa og eldhús flæða í opnu björtu rými með stórum glugga og útgengi út á rúmgóðar yfirbyggðar svalir með útsýni til austurs.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Hvít innrétting með brúnni borðplötu og sturta með glervegg. Upphengt salerni og handklæðaofn. Innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Svefnherbergi: Rúmgott með stórum veggháum fataskápum.

Mynddyrasími er í íbúðinni.

Aðstaða og aðgengi:

Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í bílageymslu , með möguleika á að setja upp hleðslustöð.

Sérgeymsla í sameign auk hjóla- og vagnageymslu.

Húsið er vel staðsett með góðu aðgengi að stofnæðum, almenningssamgöngum og allri þjónustu. Stutt í leikskóla, sund og fallegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni. Frábær eign á eftirsóttum stað í Kópavogi, fyrir þá sem vilja búa í nútímalegu, snyrtilegu og vel skipulögðu umhverfi með öllum helstu þægindum.

Upplýsingar veitir Davíð Ólafsson fasteignasali í síma 897-1533 eða david@fastborg.is