Virkisás 17

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 189.900.000 kr.

Virkisás 17
Tegund
Einbýlishús
Stærð
214,499999237061 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
885.315 kr.

Lýsing

Virkisás 17 – Glæsilegt einbýlishús á einni hæð

Virkisás 17 er glæsilegt og afar vel skipulagt einbýlishús á einni hæð þar sem vandað hefur verið til verka í hvívetna. Húsið er staðsteypt, einangrað og klætt að utan með fallegri álklæðningu. Um er að ræða 214,5 fm eign samkvæmt fasteignamati. Þar af er bílskúr 39,8 fm og íbúðarhlutinn 174,7 fm.

Efnisval og búnaður:

Gegnheilt Herringbone parket frá Ebson, lagt af Fasteignafegrun

Flísar frá Álfaborg og Porcelanosa

Sérsmíðaðar innréttingar frá Nordiska í Svíþjóð

Loftskiptakerfi í öllu húsinu

Loftadúkur frá Pons

Sonos hljóðkerfi falið á bak við loftadúk í stofu, eldhúsi og sjónvarpsholi

Salerni, vaskar og hreinlætistæki frá Ísleifi

Siemens heimilistæki

Grenton heimiliskerfi (snjallhúsalausn)

Schüco álgluggakerfi

Möguleiki á rafstýrðum gardínum í öllum gluggum ásamt LED-lýsingarlausnum

Nánari lýsing:

Komið er inn í rúmgóða forstofu með fallegum fataskáp. Frá forstofu er innangengt í bílskúr.

Alrými eignarinnar er einstaklega bjart og glæsilegt með mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum. Þar sameinast stofa, borðstofa og eldhús í opnu og fallegu rými.

Eldhúsið er rúmgott með stórri eyju, miklu vinnuplássi og góðu skápaplássi.

Í svefnherbergisálmu eru tvö barnaherbergi og baðherbergi með glæsilegri „walk-in“ sturtu. Frá baðherberginu er útgengt í garð eignarinnar.

Hjónasvítan er afar rúmgóð með fataherbergi og sér baðherbergi.

Sjónvarpshol er sérstaklega veglegt, alls 25,3 fm að stærð, og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.

Bílskúrinn er rúmgóður og bjartur með góðum gluggum og mikilli lofthæð.

Lóðin: er glæsileg og hefur verið vel hönnuð. Fallegir steyptir veggir umlykja eignina og stór verönd hefur verið útbúin. Gert er ráð fyrir bæði heitum og köldum potti á veröndinni. Innkeyrsla og bílaplan eru steypt. Eignin stendur á rúmgóðri og vel staðsettri lóð í hinu vinsæla og ört vaxandi hverfi Áslandi 4 í Hafnarfirði. Þar er stutt í leikskóla og grunnskóla, Í nágrenni eignarinnar eru vinsælar göngu- og útivistarleiðir um Helgafell sem hefur á síðustu árum orðið eitt eftirsóttasta útivistarsvæði Hafnarfjarðar. Stutt er í svæðið þar sem fjölskyldur og útivistarfólk njóta einstakra gönguleiða og stórkostlegs útsýnis yfir höfuðborgarsvæðið. Hvaleyrarvatn er svo í aðeins örfárra mínútna fjarlægð og býður upp á fjölbreytta útivist allt árið um kring, svo sem göngur, hlaupaleiðir, hjólreiðar og náttúruupplifun.

Báðar þessar náttúruperlur eru í næsta nágrenni og gera staðsetninguna sérstaklega eftirsóknarverða fyrir þá sem kunna að meta útivist og fallegt umhverfi.

Hér er um að ræða einstaklega glæsilega eign þar sem gæði, hönnun og staðsetning fara saman. Eign sem sannarlega er vert að skoða.

Nánari upplýsingar veita:

Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

[link]

[link]

[link]