Austurbrú 2

600 Akureyri

Ásett verð: 55.900.000 kr.

Austurbrú 2
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
53 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
0
Byggingarár
2017
Fermetraverð
1.054.717 kr.

Lýsing

Nordik fasteignasala kynnir eignina Austurbrú 2, 600 Akureyri

- Hafðu samband í síma 4621212 eða í tölvupósti á nordik@nordikfasteignasala.is -

** *Sjá myndband af eign hér* **

Austurbrú 2 er 53 fm. íbúð á annarri hæð, auk bílastæðis í bílakjallara, í fjölbýlishúsi með lyftu í miðbæ Akureyrar. Falleg fasteign með útsýni út Eyjafjörðinn. Gengið er inn í stigahús og lyfta tekin upp á 2 hæð. Þar er gengið út á opinn stigagang og inn í íbúðina. Gengið er inn í gang og þaðan inn í svefnherbergi með góðum fataskáp, baðherbergi með innangenginni sturtu og í opna sambyggða stofu og eldhús. Úr stofunni er gengið út á svalir.

Íbúðin er á frábærum stað í nýlegu húsi í miðbæ Akureyrar. Sér bílastæði fylgir og er í bílastæðahúsi undir húsinu.

Nánari lýsing:

Forstofa: Harðparket á gólfi og spónlagður eikarskápur.

Svefnherbergi : Harðparket á gólfi, góður spónlagður eikarskápur, með hæglokandi skúffum að hluta.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og í inngenginni sturta. Björt, hvít, innrétting. Handklæðaofn.

Stofa/eldhús : Sambyggð stofa og eldhús. Tvískipt eikar og hvít innrétting. Gengið út á steyptar svalir sem snúa til norðurs.

Bílakjallari: Hægt að komast að bæði með lyftu og stiga. Sér bílastæði fylgir eigninni.

Annað:

- Er á góðum stað í miðbæ Akureyrar og nýtur alls þess góða sem þar er að finna án þess að verða fyrir miklum beinum áhrifum frá lífi í bænum.

- Austurbrú 2-4 var reist árið 2017 og var vandað til verka við reisningu hússins.

- Mynddyrasími er í eigninni.

- Innfelld lýsing í eigninni allri.

- Hæglokun er í öllum skúffum.

- Snjóbræðsla í bílageymslurampi.

- Húsið er upphitað með Rehau gólfhitakerfi, hitastillir er í hverju herbergi.

- Pottrör eru í skólplögnum með tilliti til hljóðvistar.

- Hljóðeinangrunargler er í öllum gluggum.

- Vönduð og eiguleg eign.

Nánari upplýsingar veitir

Andres Már Magnússon lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 4621212 eða í tölvupósti á nordik@nordikfasteignasala.is

​​​​​​Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Nordik fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.