Eyravegur 50

800 Selfoss

Ásett verð: 53.400.000 kr.

Eyravegur 50
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
101,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2006
Fermetraverð
528.190 kr.

Lýsing

RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Rúmgóð og snyrtileg 3ja herbergja íbúð í steinsteyptu, álklæddu lyftuhúsi með sérinngangi af sameiginlegum svölum. Fallegt og mikið útsýni yfir Ölfusá og til fjalla. Íbúðin skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi, stofu, eldhús og þvottaherbergi ásamt geymslu innan íbúðar. Sólarsvalir sem snúa til suðvesturs.

Nánari lýsing:

Eldhús er með ljósri viðarinnréttingu og borðkrók við útsýnisglugga, op milli stofu og elhúss.

Forstofa með góðum skápum upp í loft, dökk gráar flísar á gólfi.

Þvottaherbergi er með skolvaski í borði og dökk gráum flísum á gólfi.

Tvö svefnherbergi eru tvö rúmgóð með góðum fataskápum. Til viðbótar er geymsla innan íbúðar sem nýtt er sem skrifstofa í dag.

Baðherbergi er með hvítum baðtækjum, upphengdu salerni, sturtu í baðkar og vask í innréttingu, dökk gráar flísar á gólfi.

Stofa og borðstofa þaðan sem út gegnt er út á suð-vestur svalir Fallegt útsýni til fjalla. Útgangur á sólar útsýnis svalir.

Sameign : Teppi á þrepum flísar á öðrum gólfum. Lyfta. Sér geymsla fylgir íbúðinni á 1. hæðinni.

Sérgeymsla fylgir á jarðhæð.

Hús að utan er með viðhaldslétta álklæðningu og viðarklæðningu að hluta.

Lóð er með steyptu bílaplani að framan og grasflötum að aftan og til hliðar. Góð bílastæði.

Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á julian@remax.is - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3 . Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.