Árakur 1

210 Garðabær

Ásett verð: 86.900.000 kr.

Árakur 1
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
108,3 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2007
Fermetraverð
802.401 kr.

Lýsing

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is og Betri Stofan kynna Árakur 1, fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með rúmgóðri viðarverönd í góðu 6 íbúða fjölbýlishúsi á eftirsóttum og skjólsælum stað við Árakur 1 í Garðabæ.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa með tvöföldum skáp.

Eldhús , borðstofa og stofa í opnu rými með útgengi út á sólpall sem snýr í suðvestur átt.

Eldhús með stáltækjum með eyju sem tengir eldhús við borðstofu og stofu.

Hjónaherbergi er rúmgott með skápum.

Svefnherbergi er rúmgott með skápum.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hiti í gólfi, baðkar, sturtuklefi og innrétting. Gluggi með opnanlegu fagi.

Þvottahús er með innréttingu, góðri vinnuaðstöðu, flísalagt gólf með gólfhita. Gluggi með opnanlegu fagi.

Sérgeymsla íbúðar 14,9 fm er í kjallara með hillum.

Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

Lóðin er fullfrágengin með góðri aðkomu og nægum bílastæðum.

Húsfélag er starfandi í húsinu.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í Akralandinu þaðan sem stutt er í leikskóla, Hofstaðaskóla, Fjölbrautarskólann í Garðabæ, íþróttasvæði, matvöruverslun og út á aðalbrautir.

Húsið er viðhaldslétt, byggt árið 2007 í góðu ástandi að utan, álklætt og með ál/timbur gluggar.

Samkvæmt FMR skiptist eignin í íbúð 93,4 fm og geymsla 14,9 fm, samtals 108,3 fm.

Nánari upplýsingar veitr: Jason Kr. Ólafsson s. 775 1515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.