Vesturvin 3 - 606

101 Reykjavík

Vesturvin 3 - 606
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
107,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Byggingarár
2024

Lýsing

Miklaborg kynnir: Tækifæri til að tryggja sér íbúð í einu glæsilegasta fjölbýlishúsi höfuðborgarsvæðisins. Metnaðarfull hönnun á frábærum útsýnisstað í Vesturbæ Reykjavíkur. Húsið er staðsett örstutt frá verslun og þjónustu og í 10-15 mín. göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur.

Íbúð 606 er glæsileg íbúð á 6. hæð en þar er frábært útsýni í suð-vestur. Íbúðarrýmið skiptist meðal annars í stórar og bjartar stofur með opnu eldhúsi sem er með eldunareyju . Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og þar af hjónaherbergi með fataskáp og sér baðherbergi. Gestasnyrting og Þvottaherbergi eru á hæðinni. Íbúðinni fylgja 82 m2 svalir með óviðjafnanlegu útsýni í suð-vestur. Tengi fyrir heitum potti er á svölum. íbúðin er skráð 107,7 m2 með geymslu sem er 7,7 m2. Íbúðinni fylgir bílastæði í lokaðri bílgeymslu merkt nr.18 og einnig sérgeymsla í sameign merkt 3-0049.

Íbúðirnar afhendast með hágæða ítölskum innréttingum en hægt verður að velja úr þremur þemum sem má kynna sér á vefsíðu Vesturvinar eða með því að hafa samband við sölumann Miklaborgar. Vönduð tæki frá Miele og Siemens. Steinborðplötur og gólfsíðir gluggar. Allar íbúðir eru með gólfhita.

Nánari upplýsingar:

Böddi Lgf.S;8216300 eða boddi@miklaborg.is

Íris Lgf S;7700500 eða itis@miklaborg.is