Lyngheiði 10

810 Hveragerði

Ásett verð: 94.500.000 kr.

Lyngheiði 10
Tegund
Einbýlishús
Stærð
188,799999237061 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1982
Fermetraverð
500.530 kr.

Lýsing

Guðbergur og fasteignasalan Bær kynna: Gott einbýlishús 188,8 fm með 4 svefnherbergjum, tveim snyrtingum, suður garður, heiturpottur og bílskúr. Húsið stendur miðsvæðis í Hveragerði og í enda botnlanga götu.

Nánari lýsing: Forstofa, fjögur svefnherbergi, stofa, eldhús, sjónvarpshol, baðherbergi, gestasnyrting, þvottaherbergi og bílskúr.

Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Gestasnyrting er inn af forstofu flísalögð í hólf og gólf og með glugga. Eldhús með flísum á gólfi, eldri innrétting og borðkrókur.

Þvottaherbergi er inn af eldhúsi með flísum á gólfi, innréttingu og lúgu upp í þakgeymslu sem er yfir nánast öllu húsinu.

Stofa/borðstofa með parket á gólfi og útgengi út á sólpall í suður . Sjónvarpshol með flísum á gólfi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, hornbaðkar með sturtu, innrétting og salerni.

Svefnherbergin eru 4 eitt með fataskápum, tvö með parketi og tvö með kork á gólfum. Bílskúr er rúmgóður og bjartur með geymslulofti yfir hluta skúrsins, tvær gönguhurðar og ein bílskúrshurð með rafmagns opnun.

Húsið hefur verið í góðu viðhaldi: Þakkantur endurnýjaður 2021 á húsi og bílskúr, timburklæðning utan á húsi var endurnýjuð 2021 að stórum hluta, ásamt einum glugga í austur.

Húsið er í enda götunnar og er opið svæði vestan við húsið sem ekki verður byggt á.

Flott eign á góðum stað og stutt í alla þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbergur Guðbergsson löggiltur fasteignasali s 8936001 beggi@fasteignasalan.is