Lækjarflói 22 Bil 111

300 Akranes

Ásett verð: 26.900.000 kr.

Lækjarflói 22 Bil 111
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
60 m²
Herbergi
1
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
2023
Fermetraverð
448.333 kr.

Lýsing

HÁKOT fasteignasala og Daníel Rúnar Elíasson löggiltur fasteignasali sími: 431-4045 / 899-4045 auglýsa:

*** LÆKJARFLÓI 22 - BIL 111 *** Geymsluhúsnæði (60 m²) með flekahurð m/opnar og inngönguhurð.

EINNIG TIL LEIGU KR. 180.000 Á MÁN + VSK

Innan eignar er eitt geymslurými með ræstivask (möguleiki á salerni).Sérafnotaréttur 6.0 m² útfrá húsinu.

Innkeyrsluhurð 2,7 m x 2,90 m. Lofthæð 3.7 m undir hæsta punkt

Öll bílastæði og aksturlína meðfram lóðarmörkum eru malbikuð. Snjóbræðsla er fyrir framan hurðar.

Sameiginlegt inntaksrými sem er með sameiginlegri snyrtingu

Lóðin er girt af og rafmagnshliði á láréttri braut auk gönguhliðs.

Kaupandi yfirtekur áhvílandi virðisaukaskatts kvöð (nú kr. 4.463.834).

ALMENN SKILALÝSING

Húsið allt er samtals 495,1 m2, og brúttórúmmál 1.880,2 m3. Innan byggingar er 12 séreignarrými og

eitt inntaksrými, sem er að auki með sameiginlega snyrtingu/salerni.

Húsið er byggt samkvæmt aðaluppdráttum frá Al-Hönnun ehf. Húsið er á steyptum grunni með steyptri

botnplötu og burðarvirki úr límtré þar yfir. Yleiningar á þaki með áföstum dúk þar yfir.

Inntaksrými:Inntaksrými er byggt úr léttum veggjum svo sem yleiningum, timbri eða sambærilegu. Inntaksrýmið

verður klætt að utanverðu með sérmeðhöndlaðri furuklæðningu sem gefur húsinu náttúrulegt yfirbragð.

Gluggar/hurðar: Gluggar og gönguhurðar eru úr PVC-U prófíl með stálkjarna. Lausafög eru með tvöföldum

gúmmíþéttingum. Inngangshurðar og hurð að sameign verða úr vinilklæddum stálprófílum, litur RAL

7016, hengslaðar og með þriggja punkta læsingum. Aksturshurðir verða flekahurðir með láréttum prófíl.

Aksturshurðir eru með rafmagnsopnara og tveimur fjarstýringum. Ein gluggaröð með tveimur gluggum

er í aksturshurðum. Litur RAL 7016. Aksturshurð er 2,7m á breidd og 2,9m á hæð í stærri rýmunum en

2,5m á breidd í og 2,18 hæð í minni bilum 101-106

Þak: Þak verður fullfrágengið ásamt niðurföllum sem tengd verða fráveitukerfi eða tvinnað saman við

blágrænar ofanvatnslausnir. Á þak eru notaðar steinullaryleiningar. Yfir yleiningar verður lagður þakdúkur

sem vatnsvarnarlag og með UV sólarvörn. Þakniðurföll sett með laufgildru og tengd þakniðurföllum.

Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.