Hallgerðargata 19

105 Reykjavík

Hallgerðargata 19
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
178,8 m²
Herbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2020

Lýsing

Miklaborg og Böddi kynna: Glæsileg hárgreiðslustofa til LEIGU við Hallgerðargötu 19

Björt og rúmgóð, 178,8 fm hárgreiðslustofa á jarðhæð. Stofan er vel skipulögð í opnu rými með stórri afgreiðslu og góðu verslunarrými fremst. Mikið gluggarými og vönduð lýsing skapa aðlaðandi umgjörð fyrir starfsfólk og viðskiptavini.

Á stofunni eru 12 rúmgóðar vinnuaðstöður með speglum , þar af níu með klippistólum, ásamt fjórum vönduðum þvottavöskum með nuddi . Gott bil er á milli vinnuaðstaðna og nægt athafnarými.

Húsnæðið er tiltölulega nýparketlagt og búnaður vel með farinn. Góð kaffi- og eldhúsaðstaða, þvottaaðstaða og lageraðstaða eru til staðar, auk aðgangs að sameiginlegu rými.

Nóg er af bílastæðum í bílastæðahúsi undir húsinu , en þaðan er komið upp beint fyrir framan stofuna.

Stofan er nánast tilbúin til opnunar – hér er tækifæri til að fylla hillurnar af vörum, mæta með starfsfólkið og hefja rekstur í glæsilegri aðstöðu.

Nánari upplýsingar veitir Böddi, löggiltur fasteignasali hjá Mikluborg.

Sími: 821 6300

Netfang: boddi@miklaborg.is

Allar nánari upplýsingar gefur