Dalland 0

271 Mosfellsbær

Ásett verð: 112.000.000 kr.

Dalland 0
Tegund
Lóð
Stærð
166000 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Fermetraverð
675 kr.

Lýsing

JÖRÐ TIL SÖLU Í MOSFELLSBÆ – 16,6 ha þar af 6,1 ha deiliskipulagðir fyrir lögbýli. Landinu er skipt upp í tvær landeignir samkvæmt Merkjalýsingu dags. 2. júlí 2026, Djúpadalsveg 10 L123625, 61058,4 m2 og Djúpadalsveg 2 L238818, 108461,2 m2.

Trausti fasteignasala og Halldór Frímannsson lgf. kynna til sölu jörð á friðsælum stað sunnan við Hafravatn, við Nesjavallaleið í Mosfellsbæ 16,6 hektara úr landi Dallands, þar af 6,1 ha með samþykktu deiliskipulagi fyrir lögbýlið Stekk.

Stærð: 16,6 ha

Fasteignanr. : 208-1909

Landeignanr. : L123625

Deiliskipulag heimilar byggingu eftirfarandi:

Íbúðarhús á 2 hæðum, allt að 300 m²

Véla-, reið- og tamningaskemmu , allt að 800 m²

Hesthús eða gripahús , allt að 300 m²

Ylræktarhús, allt að 100 m²

Heildarbyggingarmagn: 1.500 m²

Fasteignamat 2026 kr. 21.650.000

Deiliskipulagið leggur áherslu á sjálfbæra matvælaframleiðslu, svo sem ræktun rótar- og garðávaxta, ylrækt og skógrækt til skjólmyndunar. Hentar einnig þeim sem vilja stunda hrossarækt eða annað húsdýrahald. Jafnframt er ætlunin með deiliskipilaginu að hefta frekari útbreiðslu lúpinu.

Staðsetning býður uppá rólegt sveita umhverfi með borgina rétt hjá, náttúru, frið og fjölbreytta útivist, án þess að þurfa að fórna þægindum þéttbýlisins.Landið er að mestu hálf grónir melar þar sem lúpina hefur náð að dreifa sér. Engin mannvirki eru á landinu.

Annað: Fasteignaskattur af útihúsum og mannvirkjum á bújörðum sem tengd eru lanbúnaði, s.s. grasrækt, garðrækt, ylrækt, skógrækt og búfjárrækt sem talist geti búrekstur eða þáttur í búrekstri, er sá sami og af íbúðarhúsum, sbr. 2. gr. reglug. nr. 1160/2005 um fasteignaskatt.

Áhugasamir eru hvattir til þess að kynna sér "Deiliskipulag fyrir landbúnaðarsvæði að Stekk, landspilda úr Dallandi (L123625)" inná kostasjá Mosfellsbæjar auglýst í Stjórnartíðindum 28. október 2024. [link]

Afhending: Við undirritun kaupsamnings.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Frímannsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6605312, tölvupóstur halldor@trausti.is.