Þórunnarstræti 108 B

600 Akureyri

Ásett verð: 114.500.000 kr.

Þórunnarstræti 108 B
Stærð
285,499999237061 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Byggingarár
1964
Fermetraverð
401.051 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Þórunnarstræti 108 B

Um er að ræða 6 herbergja efri hæð í tvíbýli ásamt leigueiningu í kjallara og stakstæðan tvöfaldan bílskúr, miðsvæðis á Akureyri í næsta nágrenni við Sundlaug Akureyrar. Eignin er samtals 285,5 fm. þar af er bílskúr 43,8 fm. og rými í kjallara 99.5 fm..

-- Þórunnarstræti 108 A er einnig til sölu og kemur til greina hjá eiganda að selja allt húsið í heild sinni. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband á skrifstofu --

Eignin skiptist í anddyri og stigauppgöngu, gang, 5 svefnherbergi, stofu, baðherbergi og eldhús auk þvottahús í kjallara. Íbúð í kjallara skiptist í opið anddyri og gang, eldhús, baðherbergi, stofu og svefnherbergi.

Forstofa er með dúk á gólfi, opnu fatahengi og úr forstofu er stigi niður í þvottahús.

Steyptur stigi með dúk á gólfi er úr forstofu og á aðalhæð.

Gangur er nokkuð opinn, með dúk á gólfi og tengir öll rými íbúðarinnar. Lúga er á gangi fyrir framan baðherbergi upp á loft.

Svefnherbergi eru fimm , öll með dúk á gólfi og öll með skápum fyrir utan eitt þeirra og úr einu þeirra er útgengt út á svalir til suðurs og vesturs. Gerð voru tvö svefnherbergi úr stofurými á teikningum og stofa er í dag í suðvesturhorni íbúðar sem er skráð sem herbergi á teikningar.

Baðherbergi var endurnýjað fyrir um 20 árum, það er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtutækjum, upphengt salerni, innrétting í kringum vask og opnanlegt fag í glugga. Skápar eru fyrir framan hjónaherbergi og baðherbergi.

Stofa er björt með gluggum til tveggja átta og dúk á gólfi.

Eldhús er með dúk á gólfi, upprunalegri innréttingu og eldhúskrók, þá er búið að koma upp aðstöðu fyrir 45 cm. uppþvottavél. Lítið búr er inn af eldhúsi.

Þvottahús er í kjallara, þar er sér inngangur auk þess sem aðgengilegt er niður um forstofu.

Aukaíbúð er í þeim rýmum sem tilheyra efri hæð, í kjallara og er skráð á teikningum sem geymsla. Hún var endurnýjuð á árinum 2020 - 2021.

Gengið er inn um inngang í þvottahús í þá íbúð og hefur íbúðin þvottaaðstöðu í þessu sameiginlega rými.

Komið er inn í opið anddyri , á vinstri hönd er eldhús með hvítri innréttingu, stæði fyrir ísskáp og borðkrók. Baðherbergi er með sturtu, upphengdu salerni, speglaskáp fyrir ofan handlaug og opnanlegu fagi í glugga.

Stofa er á sama stað og á efri hæð eða í suðvesturhorni, gluggar til tveggja átta og parket á gólfi. Svefnherbergi er svo við endan á ganginum og þar er parket á gólfi.

Tvöfaldur bílskúr sem stendur á norðausturhorni lóðar fylgir efri hæð. Þar eru tvær innkeyrslu hurðir á vestur hlið og ein inngönguhurð á suðurhlið. Bílskúr þarnast múrviðgerða að utan. Leitt er í hann vatn og rafmagn og er hann upphitaður með ofnakerfi.

Annað:

-Ljósleiðari

-Húsið málað í kringum 2014

-Eirlagnir að hluta í ofnakerfi sem var endurnýjað fyrir ca. 20 árum.

-Endurnýjuð vatnsgrind fyrir efri hæð

-Drenað í kringum aldamótin 2000 að sögn eiganda

-Lóðin er sameiginleg en sérafnotafletir vegna bílastæða eru við húsið. Efri hæð á sem nemur breidd bílskúrs að vesturenda lóðar.

-Frábær staðsetning, stutt í leik og grunnskóla ásamt Sundlaug Akureyrar, Glerártorg og miðbæinn.

-Gluggar í húsinu orðnir lélegir

-Þak þarfnast orðið viðhalds

-Húsfélag er ekki virkt

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

berglind@byggd.is

olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955